BUSARNIR KOMNIR TIL AÐ SJÁ OG SIGRA!

Saga Davíðsdóttir

Já kæru samnemendur, heill hellingur af æðislega skemmtilegum nýnemum byrja í MH í haust!


MH var bilaðslega vinsæll í ár, tæplega 800 nýútskrifaðir 10.bekkingasnillar sóttu um í skólann okkar, þar af settu 342 MH í sitt allra fyrsta val.

Í haust byrja 280 nýnemar í skólanum og við getum ekki beðið eftir því að fá að kynnast þeim!

Til þess að bjóða nýju busana okkar velkomna héldum við í stjórn nemendafélagsins busahitting á vegum NFMH á Klambratúni. Þar var boðið upp á gosdrykki og súkkulaði í sólinni og við fórum í allskonar leiki til þess að kynnast betur. Hittingurinn heppnaðist frábærlega og ég er hrædd um að þessi árgangur af MH-ingum verður einn sá besti sem skólinn hefur séð! Myndbandabúi kíkti við til þess að taka upp þessa gríðarlegu stemningu og taka viðtöl við krakkana og þau eru vægast sagt ánægð með útkomuna. Myndbandið má sjá á Youtube rás Myndbandabúa þegar vinnslu er lokið.


Sjáumst að sumri loknu og verið hjartanlega velkomin í MH kæru busar!


30. mars 2025
Leikfélag MH og nemendur í MÍT sýna söngleikinn Diskóeyjan. Diskóeyjan er fönkskotinn diskósöngleikur, byggður á samnefndri hljómplötu Memfismafíunnar. Sagan og tónlistin er sköpuð af Braga Valdimari Skúlasyni, Óttarri Proppé og Guðmundi Kristni Jónssyni. Leikstjóri er Ástbjörg Rut Jónsdóttir, danshöfundur er Sóley Ólafsdóttir, söngstjóri er Gísli Magna og hljómsveitarstjóri er Agnar Már Magnússon.
30. mars 2025
MH sigraði Gettu Betur í ár. Þau Atli Ársælsson, Valgerður Birna og Flóki Dagsson sigruðu spurningakeppni framhaldskólana, Gettu Betur í æsisspennandi úrslitaleik gegn Menntaskólanum á Akureyrir. Þetta er annað árið í röð sem við vinnum hljóðneman. Aðaliðið, varaliðið og þjálfarar Gettu Betur liðs MH fá stórt hrós fyrir tímabilið sem þafa varið í undirbúning fyrir keppnina. Lengi lifi MH!