Lög NFMH

1. ALMENN ÁKVÆÐI

1.1. Nafn félagsins er Nemendafélag Menntaskólans við Hamrahlíð (NFMH).

1.2. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

1.3. Tilgangur félagsins er að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna sinna og virkja þá í félagsstarfsemi innan skólans. Félagið starfar ávallt á lýðræðislegum grundvelli.

1.4. Í atkvæðagreiðslum innan NFMH skal einfaldur meirihluti ráða nema annað sé tekið fram í lögum. Standi atkvæði á jöfnu skal tillagan felld.

1.5. Allir félagsfundir innan NFMH skulu opnir öllum félagsmönnum þess.

1.6. Skráðir meðlimir NFMH fá ekki greitt í peningum fyrir hvers konar störf sem tengjast eða eru í þágu NFMH.


2. STJÓRNSKIPAN

2.1. Stjórn NFMH.

2.1.1. Stjórn NFMH er skipuð forseta, varaforseta, gjaldkera, skólastjórnarfulltrúa kjörnum á haustönn ásamt oddvitum lagningardagaráðs, leikfélags, listafélags, skemmtiráðs auk ritstjóra Beneventum. Þeir einir hafa atkvæðisrétt innan stjórnar NFMH.

2.1.2. Forseti skal koma fram sem fulltrúi NFMH gagnvart aðilum utan skóla sem innan. Hann skal leitast við að efla einingu félagsmanna NFMH og stuðla að öflugu og fjölbreyttu félagslífi. Forseti er áheyrnarfulltrúi nemenda í skólastjórn og skólanefnd. Forseti skal sitja sem formaður lagabreytinganefndar. Forseti skal boða til stórfélagsfundar í upphafi hverrar annar og félagsfunda eftir þörfum. Forseti skal undirrita alla samninga á vegum NFMH og skulu þeir samningar standa einir gagnvart NFMH. Forseti skal vera orðinn fullra 18 ára á kjördag.


2.1.3. Varaforseti er staðgengill forseta og ábyrgðarmaður alls útgefins efnis á vegum NFMH, nema Beneventi, þar hefur varaforseti tillögu- og athugasemdarétt. Öll útgáfa á vegum NFMH er háð samþykki varaforseta félagsins. Varaforseti ritar fundargerðir stjórnar NFMH og heldur reglu á skjalasafni NFMH, Bessastöðum. Varaforseta ber að birta fundargerðir stjórnar, stórfélagsfunda og skólafunda NFMH innan við viku frá fundum. Varaforseti skal standa að útgáfu Skaramúss, símaskrár NFMH. Skaramúss skal koma út einu sinni á ári, snemma á haustönn og skal varaforseti halda til haga þremur eintökum úr hverri útgáfu fyrir skjalasafn NFMH. Varaforseti sér til þess að vefráði berist það efni sem birtast skal á heimasíðu skólans, og eru þar með talin lög þessi með öllum þeim breytingum sem á þeim kunna að verða gerðar.

2.1.4. Gjaldkeri hefur yfirumsjón með öllum fjármálum og reikningum á vegum NFMH að frátöldum fjármálum verslananna Matsölu MH og Mararþaraborgar. Gjaldkeri hefur rétt til að yfirfara bókhald og rekstur Matsölunnar og Mararþaraborgar og gera athugasemdir ef þurfa þykir. Gjaldkeri annast fjárveitingar úr sjóði NFMH með samþykki stjórnar NFMH. Hann skal birta opinberlega yfirlit yfir helstu fjárveitingar í lok hverrar annar. Gjaldkera ber að skila endurskoðuðum reikningum fyrir 1.júlí til nýkjörinnar stjórnar NFMH. Gjaldkeri á jafnframt sæti í skólastjórn. Gjaldkeri skal vera orðinn átján ára við upphaf haustannar.

2.1.5. Skólastjórnarfulltrúi situr í skólastjórn ásamt forseta og gjaldkera. Hann skal vera tengiliður dagskólanemenda við yfirvöld skólans. Berist skólastjórnarfulltrúa ósk frá dagskólanemanda um að ákveðið mál skuli tekið upp á skólastjórnarfundi ber honum að verða við þeirri ósk. Skólastjórnarfulltrúi situr í stjórn NFMH og skal vera tengiliðurr stjórnar við embættismenn félagsins. Skólastjórnarfulltrúi skal standa að útgáfu félagsskírteina í samráði við markaðsnefnd. Skólastjórnarfulltrúi situr í markaðsnefnd. Skólastjórnarfulltrúa ber að hafa fullt samráð við forseta NFMH. Skólastjórnarfulltrúi situr í lagabreytinganefnd. Hann skal einnig vera tengiliður stjórnar NFMH við rekstrarstjóra Matsölu MH.

2.1.6. Í stjórn sitja einnig oddvitar lagningardagaráðs, leikfélags, listafélags, skemmtiráðs og ritstjóri Beneventum og erutengiliðir sinna ráða við stjórn NFMH. Þeir hafa atkvæða- og tillögurétt á stjórnarfundum.

3. FÉLÖG OG RÁÐ

3.1. Innan vébanda stórfélags NFMH starfar stjórn og fjórtán félög og ráð: Skemmtiráð, lagningardagaráð, ráð Óðríks Algaula, mímisbrunnur, íþróttafélag, leikfélag, listafélag, málfundafélag, myndbandabúi, ritstjórn Beneventi, ritstjórn Fréttapésa, búðarráð, útvarpsráð og góðgerðarfélag, hvert með sitt starfsvið. Hvert félag skal velja úr sínum hópi formann, ritara og gjaldkera, svo meira skipulag verði á vinnu félaganna.

3.1.1. Innan stórfélags NFMH starfa einnig tvær nefndir, vefnefnd og markaðsnefnd. Nýkjörin stjórn velur í nefndirnar á vorönn.

3.1.2. Hvert félag skal í upphafi haustannar auglýsa eftir nýnema sem hefur áhuga á að starfa með viðkomandi félagi. Félagið velur einn nýnema úr umsóknum og verður hann þar með meðlimur í viðkomandi félagi.

3.2. Stjórnir félaganna skulu halda stofnfund í upphafi hvers skólaárs. Á fundinum skal stjórnin skipuleggja myndun hópa um ákveðin áhugamál félagsmanna skv. óskum þeirra. Engar sérstakar reglur gilda um þessa hópastarfsemi, aðrar en þær sem hver hópur ákveður, en skulu þeir vinna að einingu félagsmanna NFMH. Einnig skulu stjórnir félaganna mæta á fund með stjórn NFMH í upphafi hverrar annar og kynna henni markmið sín; þeim skal svo miðla til Fréttapésa sem birtir þau við fyrsta tækifæri. Í lok hverrar vorannar skulu stjórnir félaganna halda eftirmatsfund og leggja fram fyrir stjórn NFMH fundargerðir og skýrslur.

3.2.1. Hver sá embættismaður, meðlimur eða félag/ráð NFMH sem vanrækir skyldur sínar sem uppgefnar eru varðandi það embætti, ráð eða félag í lögum NFMH fá ekki að njóta þeirra fríðinda sem fylgja stórfélaginu. Sem dæmi um fríðindi eru hópeflisferðir, stórfélagspartí og fótboltamót stórfélagsins. Nefnd skipuð forseta og tveimur félagsmönnum NFMH skipuðum af stjórn NFMH sér um að dæma um afköst embættismanna, meðlima eða félaga/ráða. Nefndin skal funda ekki síðar en í lok september mánaðar haustannar og byrjun febrúarmánaðar vorannar. Ef þörf þykir getur nefndin bætt inn fundum eftir hentisemi. Nefndin í samráði við stjórn NFMH ákveður síðan hegningu við hæfi.


3.3. Skemmtiráð:

3.3.1. Skemmtiráð er skipað af fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningu í vorkosningum. Oddviti skemmtiráðs situr einnig í stjórn.

3.3.2. Skemmtiráð velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum ráðsins í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri Skemmtiráðs skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.3.3. Skemmtiráð skipuleggur og sér um dansleiki á vegum NFMH. Það sér einnig um skipulagningu árshátíðar í samráði við stjórn félagsins. Allar skuldbindingar skemmtiráðs skulu samþykktar af stjórn félagsins. Skemmtiráði ber að stuðla að sem flestum skemmtikvöldum og skemmtilegum uppákomum.

3.3.4. Til að sem flestir félagsmenn NFMH skemmti sér og öðrum sem mest, skal skemmtiráð halda uppi sem öflugustu félagslífi, en halda því innan hinna almennu velsæmismarka.

3.4. Lagningardagaráð:

3.4.1. Lagningardagaráð er skipað fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum. Oddviti lagningardagaráðs situr einnig í stjórn.

3.4.2. Lagningardagaráð sér um og skipuleggur lagningardaga þ.e. vinnudaga nemenda og kennara þar sem hefðbundið skólastarf er brotið upp. Ráðið starfar í samráði við stjórn NFMH og skólastjórn.

3.4.3. Lagningardagaráð velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum ráðsins í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri Lagningardagaráðs skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.5. Ráð Óðríks Algaula:

3.5.1. Ráð Óðríks Algaula er skipað fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.5.2. Óðríkur Algaula er lagasmíðakeppni NFMH. Óðríkur Algaula á að stuðla að því að félagsmönnum NFMH gefist kostur á að láta ljós sitt skína á sviði lagagerðar. Ekki skal aðeins keppa um besta lagið, heldur að fleiri þáttum s.s. frumlegasta laginu, besta textanum, bestu sviðsframkomunni og hverju því sem ráð Óðríks Algaula hefur áhuga hverju sinni.

3.5.3. Lög og textar í Óðríki Algaula mega ekki hafa heyrst opinberlega fyrr. Ráð Óðríks Algaula ræður hverju sinni hve mörg lög höfundar mega hafa í keppninni. Verk í Óðríki þurfa ekki að vera einungis á íslensku, en er háð ákvörðun ráðs Óðríks Algaula hverju sinni.

3.5.4. Dómnefndin í Óðríki Algaula skal vera skipuð reynsluríku fólki á sviði lagagerðar, þá skal forðast að hafa starfsfólk skólans eða annað fólk sem getur talist hlutdrægt í dómnefnd.

3.5.5. Óðríkur skal vera haldinn á seinni hluta haustannar.

3.5.6. Söngkeppni NFMH skal skipulögð af ráði Óðríks Algaula og meðstjórnanda. Allir keppendur verða að vera meðlimir í NFMH. Sömu reglur gilda hvað varðar dómnefnd og í Óðríki Algaula.

3.5.7. Söngkeppnin skal haldin á fyrri hluta vorannar og sigurvegari hennar keppir fyrir hönd NFMH í söngkeppni framhaldsskólanna.

3.6. Vefnefnd:

3.6.1. Vefnefnd er skipað fjórum til sex fulltrúum sem fráfarandi stjórn NFMH sér um að skipa, í lok vorannar, í samráði við fráfarandi vefnefnd.

3.6.2. Vefnefnd skal halda uppi vefsetri nemendafélagsins, www.nfmh.is, og sjá um að uppfæra hana reglulega.

3.7. Mímisbrunnur:

3.7.1. Mímisbrunnur er skipaður þremur til fimm fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.7.2. Mímisbrunnur er tengiliður NFMH við Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Mímisbrunnur skal, í samráði við stjórn, útvega þjálfara Gettu betur-liðs. Þjálfarinn hefur ákvörðunarrétt í málum félagsins sem tengjast beint Gettu betur.

3.7.3. Mímisbrunnur skal standa fyrir innanskólaspurningakeppni á vorönn. Nafn keppninnar er geðþóttaákvörðun Mímisbrunns hverju sinni.

3.8. Íþróttafélag:

3.8.1. Stjórn íþróttafélagsins er skipuð fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.8.2. Stjórn íþróttafélagsins hefur yfirumsjón með íþróttastarfsemi á vegum NFMH. Hún skal annast skipulagningu og umsjón íþróttamóta.

3.8.3. Íþróttaráð skal halda skipulagt íþróttamót á hverri vorönn og skal þar keppt í fjölbreyttum íþróttagreinum. Keppnin skal bera nafnið Hlíðakapp. Þátttaka á mótinu skal vera ókeypis og einskorðast við nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð.

3.8.4. Íþróttafélag skal árlega sjá um glímukeppni milli forseta nemendafélagsins og rektors eða konrektors MH.

3.9. Leikfélag:

3.9.1. Stjórn leikfélagsins er skipuð þremur til fimm fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum. Oddviti leikfélags situr einnig í stjórn.

3.9.2. Stjórn leikfélagsins skal standa fyrir leiksýningu(m) á skólaárinu, standa fyrir leiklistarnámskeiðum, fá til liðs við sig leikstjóra og aðra aðstoðarmenn eftir því sem þurfa þykir. Stjórn leikfélagsins skal einnig vera reiðubúin til þess að standa fyrir uppákomum á nýnemaskemmtun og árshátíð á vorönn. Nýnemaskemmtun á haustönn er í höndum skemmtiráðs í samráði við stjórn leikfélagsins.

3.9.3. Stjórn leikfélagsins velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum ráðsins í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri stjórnar leikfélagsins skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.9.4. Í lok vorannar skal fráfarandi leikfélagsstjórn afhenda nýkjörinni leikfélagsstjórn aðstöðu Leikfélagsins, Undirheima, í því ástandi að þeir séu hreinir og svartmálaðir.

3.9.5. Leikfélagsstjórn skal á hverri haustönn halda dragkeppni í fjáröflunarskyni. Leikfélagsstjórn skal beita sér fyrir að hafa keppnina sem glæsilegasta og hvetja stúlkur jafnt sem drengi til þátttöku. Á keppninni skulu krýnd dragdrottning og dragkóngur Menntaskólans við Hamrahlíð þess skólaárs. Allur hagnaður af keppninni skal renna óskiptur í Leikfélagssjóð.

3.9.6. Leikfélag skal árlega setja upp söngeik byggðan á Hringadróttinssögu Tolkiens.

3.10. Listafélag:

3.10.1.Stjórn listafélagsins er skipuð fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum. Oddviti listafélags situr einnig í stjórn.

3.10.2. Stjórn listafélagsins skal hafa samráð við þá hópa sem starfa á sviði lista innan NFMH. Það sér um skipulagningu tónleika, myndlistarsýninga, kvikmyndasýninga og annars sem list getur talist.

3.10.2.1. Stjórn listafélagsins skal standa fyrir minnst einum viðburði í hverjum mánuði.

3.10.3. Stjórn listafélagsins velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum listafélags í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri stjórnar listafélagsins skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.10.4. Stjórn listafélagsins skal ávallt vera indy, trendy og arty.

3.11. Málfundafélag:

3.11.1. Stjórn málfundafélagsins er skipuð þremur til fimm fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.11.2. Stjórn málfundafélagsins hefur yfirumsjón með skipulagningu málfunda á vegum NFMH og skal halda ræðunámskeið að minnsta kosti einu sinni á skólaárinu. Stjórn félagsins skal efna til sem flestra málfunda og hafa efni þeirra sem fjölbreytilegast. Málfundafélagið er tengiliður NFMH við M.O.R.F.ÍS. sbr. grein 9.5.2.

3.11.3. M.O.R.T.A.R. kallast innanskólaræðukeppni NFMH og skal málfundafélagið sjá til þess að hún sé haldin einu sinni á önn.

3.12. Myndbandabúi:

3.12.1. Stjórn myndbandabúa er skipuð fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.12.2. Stjórn myndbandabúa hefur yfirumsjón með myndbandatækjakosti NFMH, standa fyrir myndbandasýningum í samráði við listafélag, halda námskeið um notkun og meðferð tækja til myndbandagerðar, standa að gerð nýnemamyndar og taka upp á myndbönd allar þær uppákomur á vegum NFMH er þurfa þykir. Skulu þær upptökur skilast til stjórnar í lok kjörtímabilsins.

3.13. Beneventum:

3.13.1. Ritstjórn Beneventi er skipuð fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum. Ritstjóri Beneventi situr einnig í stjórn.

3.13.2. Beneventum er málgagn félagsmanna NFMH. Ritstjórn Beneventi sér um útgáfu þess og skal hún ákveða efni hverju sinni.

3.13.3. Ritstjórn Beneventi skal útnefna innan sinna raða ritstjóra blaðsins og þar af leiðandi ábyrgðarmann þess.

3.13.4. Ritstjórn Beneventi velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum ráðsins í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri ritstjórnar Beneventi skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.13.5. Beneventum skal gefið út einu sinni á önn hið minnsta og skal ritstjórn Beneventi afhenda varaforseta NFMH þrjú eintök af hverri útgáfu til varðveislu í skjalasafni NFMH.

3.14. Fréttapési:

3.14.1. Ritstjórn Fréttapésa er skipuð þremur til fimm fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.14.2. Hlutverk Fréttapésa er að koma á framfæri tilkynningum varðandi félagsstarfsemi NFMH og öðrum upplýsingum. Hann skal vera upplýsingabæklingur stjórnar NFMH og vera félagsmönnum NFMH til ánægju og yndisauka.

3.14.3. Ritstjórn Fréttapésa skal sjá um útgáfu hans í samráði við markaðsstjóra NFMH.

3.14.4. Fréttapési skal koma út mánaðarlega hið minnsta. Ritstjórn Fréttapésa skal halda til haga þremur eintökum af bæklingum úr hverri útgáfu hans og afhenda varaforseta NFMH til varðveislu í skjalasafni NFMH.

3.15. Búðarráð:

3.15.1. Búðarráð er skipað þremur til fimm meðlimum NFMH sem skulu kosnir í vorkosningum.

3.15.2. Markmið búðarráðs er að ýta undir almenna kæti, lífsgleði og afköst nemenda innan NFMH.

3.15.3. Verksvið búðarráðs er að halda markað sem býður upp á vörur sem MH-ingar hafa skapað, t.d. tónlist, fatnað o.s.frv. Markaðurinn skal starfræktur a.m.k. einu sinni á önn og alltaf þegar framboð getur svarað eftirspurn.

3.15.4. Framleiðandi skal ráða verði sjálfur, en skal því stillt í hóf.


3.15.5. Tímamörk hverrar vöru eru út skólaárið. Framleiðandi skal bera fulla ábyrgð á eigin varningi.

3.15.6. Búðarráð skal gera sitt besta í að gera nemendum það mögulegt að skiptast á hinum ýmsu miðlum, svo lengi sem að slík viðskipti brjóta ekki gegn höfundarrétti. Geta viðskiptavinir nýtt sér þessa þjónustu án endurgjalds. Búðarráð skal auðvelda nemendum að skiptast á skólabókum í byrjun hverrar annar með skólabókamarkaði.

3.15.7. Búðarráð velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum ráðsins í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri Búðarráðs skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.15.8. Starfsemi félagsins er ekki í gróðastarfsemi einstaklinga og er ekki til þess að nemendur nýti hana sem flóamarkað.

3.15.9. Gjaldkeri Búðarráðs skal vera fjárráða og veraldarvanur einstaklingur.

3.16. Útvarpsráð

3.16.1. Útvarpsráð er skipað fjórum til sex fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.16.2 Útvarpsráð sér um útvarp í kosningaviku, á lagningadögum og í vikunni sem Óðríkur Algaula, lagasmíðakeppni NFMH, er haldin.

3.16.3. Í útvarpsvikum skal vera skipulögð dagskrá eftir skólatíma, frá kl. 15:30 - 23:00, að undanskildum árshátíðardegi hvar útsendingu dagsins verður lokið í síðasta lagi kl. 17:00, og tilfallandi dagskrárliðir á skólatíma.

3.16.4. Dagskrá hverrar útvarpsviku skal að upplagi vera tónlistarspilun og dagskrárliðir í umsjón meðlima NFMH og Útvarpsráðs. Í Kosningaútvarpi eiga allir frambjóðendur kost á að kynna sig og framboð sitt á þar til úthlutuðum tíma ásamt þess að eiga ákveðinn auglýsingatíma í vikunni. Í Lagningadagaútvarpi verður dagskrá dagsins kynnt að fullu í upphafi þess dags og tilkynnt hvert námskeið þegar það hefst, hvað er að gerast á því og hvar það er staðsett. Í útvarpi Óðrík verða keppendur kynntir, gömul lög og atburðir sem hafa staðið upp úr í hverri keppni spiluð og keppninni sjálfri útvarpað

3.16.5. Allir sem eru í NFMH geta sótt um að hafa þátt í útvarpsvikum.

3.16.6. Útvarpsráð skal sjá til þess að allir angar hinnar fjölbreyttu tónlistarflóru eigi fulltrúa í hverri útvarpsviku og að fjölbreytileiki útvarpsþátta verði sem mestur.

3.16.7. Tímamörk eru á hverjum þætti, en þau fara eftir dagskrá og innihaldi hvers þáttar og verða sett í samráði við stjórn NFMH þegar unnið er úr umsóknum.

3.16.8. Útvarpið er að mestu ef ekki öllu leyti fjármagnað af auglýsingum sem eru valdar í samráði við stjórn NFMH.

3.16.9. Útvarpsráð velur sér gjaldkera í samráði við stjórn NFMH. Hann einn skal hafa umsjón með fjármálum ráðsins í samvinnu við gjaldkera NFMH. Gjaldkeri Útvarpsráðs skal vera orðinn fullra átján ára í byrjun haustannar.

3.17. Þeir hópar sem ekki heyra undir félögin geta sótt um fjárveitingar til stjórnar NFMH.

3.18 Góðgerðarfélag

3.18.1 Góðgerðarfélag er skipað þremur til fimm fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.18.1.2 Allir meðlimir góðgerðarfélag skulu vera góðir. Ekki vondir.

3.18.2 Góðgerðarfélag skal sjá um að tvær góðgerðavikur séu haldnar á hverju skólaári. Ein vika skal haldin á hvorri önn en frekari tímasetningu ákveður góðgerðarfélag í samstarfi við stjórn NFMH.

3.18.3 Góðgerðarfélag skal hljóta fullan stuðning stjórnar NFMH og skal hún aðstoða ráðið eftir bestu getu.

3.18.4 Góðgerðarfélag ákveður, í sameiningu við stjórn NFMH, í hvaða málefni ágóði viknanna rennur.

3.18.5 Góðgerðarfélag er skylt að auglýsa dagskrá vikunnar, fyrir nemendum skólans, ekki seinna en viku áður en hún hefst.

3.18.6 Góðgerðarfélag er skylt að afhenta gjaldkera stjórnar NFMH ágóða hvers dags fyrir sig og fara vel yfir stöðuna með honum.

3.18.7 Meðlimir góðgerðarfélag skulu, í góðgerðaviku, klæðast fötum ekki ódýrari en 5000 krónur hver flík og mega þau ekki innihalda nein gerviefni heldur einungis eðal efni frá Persíu.

3.19 Þjóðháttafélag

3.19.1. Þjóðháttafélagið er skipað þremur til fimm fulltrúum kosnum listakosningum í vorkosningum.

3.19.2. Tilgangur þjóðháttafélagsins er að vekja athygli nemenda á sínum þjóðlega arfi og stuðla að sannri föðurlandsást.

3.19.3. Þjóðháttafélagið skal stuðla að þjóðlegum atburðum á vegum nemendafélagsins. Atburðum eins og þorrablótum, kveðskaparkeppnum eða málfundum um íslenska menningu. Þurfa meðlimir að gera íslenskum listum, hefðum og sögu hátt undir höfði.

3.19.3.1. Þjóðháttafélagið skal árlega sjá um glímukeppni milli forseta nemendafélagsins og rektors eða konrektors MH í samstarfi við Íþróttaráð.

3.19.4. Þjóðháttafélagið skal annast umsjón með klappliði MH ásamt Einhverjum. Við störf sín innan klappliðsins skulu meðlimir félagsins ávallt vera klæddir lopapeysum eða öðrum þjóðlegum klæðnaði ásamt víkingahjálmum. Einnig skulu þeir bera atgeira.

3.19.5. Meðlimum þjóðháttafélagsins er skylt að vera í þjóðbúningum eða sambærilegum viðurkenndum klæðnaði.

3.19.6. Starf þjóðháttafélagsins skal vera svo gífurlega öflugt að fólk eins og Njáll og Bergþóra, Matthías Jochumsson, Hulda og Jón Sigurðsson mun rísa frá dauðum.

3.19.7. Þjóðháttafélagi ber skilda til að hugsa vel um Miðgarðsorminn, þrífa hann fyrir fyrstu Gettu Betur keppni ársins og lengja hann um 10 cm og fylla, við hvern sigur MH í hverskyns keppnum.

 


4. FÉLAGSAÐSTAÐA OG EMBÆTTISMENN

4.1. Aðstaða NFMH:

4.1.1. Norðurkjallari heitir félagsaðstaða NFMH. Þar eru aðsetur félaga, embættismanna og stjórnar NFMH. Forseti stjórnar NFMH hefur yfirumsjón með Norðurkjallara.


4.1.2. Himnaríki er tölvu-, vinnu- og fundaraðstaða félaga NFMH. Oddvitar félaganna bera almenna ábyrgð á umgengni þess.

4.2. Stjórn NFMH skal þremur vikum eftir upphaf skólaárs hafa skipað eftirtalda embættismenn NFMH; gæslustjóra, auglýsingastjóra, kallkerfiskauða, kjallaravörð, tækjaverði, myrkrahöfðingja, I.B.-fulltrúa og einherja. Markaðsnefnd og fjáröflunarnefnd leikfélagsins skal skipuð á vorönn.

4.3. Gæslustjórar skipa félagsmenn úr NFMH sér til hjálpar við gæsluna.

4.3.1. Gæslunni ber skylda til að sjá til þess að engin vímuefni séu notuð í skólanum og/eða á lóð hans á meðan atburðum stendur. Þetta á m.a. við um tóbak.

4.3.2. Gæslustjórar og fylgisveinar þeirra skulu ætíð vera allsgáðir og vel merktir á meðan þeir sinna störfum sínum.

4.4. Auglýsingagangsters sjá um að auglýsa starfsemi á vegum NFMH. Auglýsingagangsters skulu sjá um að hengja upp þær auglýsingar sem berast skrifstofu skólans eða nemendafélaginu, svo og að taka niður óheimilar og útrunnar auglýsingar.

4.5. Kallkerfiskauði sér um auglýsingar á vegum NFMH í kallkerfi og hefur umsjón með hljóðkerfi NFMH.

4.6. Kjallaraverðir skulu hafa eftirlit með félagsaðstöðu og stuðla að mannsæmandi umgengni. Þeir skulu í samstarfi við húsvörð, sjá um viðhald í félagsaðstöðu. Kjallaraverðir skulu vera séntilmenni og handlagnir úr hófi fram.

4.6.1. Kjallaraverðir skulu ekki þurfa að greiða aðgangseyri að skemmtunum og/eða öðrum uppákomum sem að einhverju eða öllu leyti eru haldnar í kjallaranum. Þeir skulu einnig vera allsgáðir og í einkennisbúningi kjallaravarða við þessi tilefni.

4.6.2. Kjallaraverðir skulu sjá til þess að minnsta kosti einn þeirra hjálpi til við undirbúning og frágang vegna atburða í Norðurkjallara nema að skipuleggjendur biðji um annað.

4.6.3. Kjallaraverðir skulu halda ítarlega og nákvæma skrá um staðsetningu sófa í Norðurkjallara. Umrædd skrá skal vera uppfærð í upphafi hverrar annar.

4.6.4. Kjallaraverðir skulu einnig aðstoða við uppröðun stóla og húsgagna fyrir atburði á vegum NFMH sem haldnir eru á Miklagarði.

4.7. Tækjaverðir skulu hafa yfirumsjón með tækjakosti NFMH, þeir skulu einnig í upphafi hvers skólaárs yfirfara tækjakost NFMH og skila til stjórnar NFMH lista yfir tækin. Þeir skulu svo í lok embættistíðar sinnar skila inn nýjum lista og taka þar fram allar breytingar á tækjakosti NFMH.

4.7.1. Hagnaður af tækum rennur til tækjasjóðs sem gjaldkeri NFMH hefur yfirumsjón með.

4.8. Myrkrahöfðingjar hafa umsjón með ljósmyndaaðstöðu NFMH og skulu þeir sjá um viðhald á tækjum þar. Myrkrahöfðingjar annast einnig myndatökur og viðhald myndasafns af skemmtunum og atburðum á vegum NFMH.

4.8.1. Myrkrahöfðingjar skulu taka myndir af öllum auglýsingum er gerðar eru fyrir NFMH því þær eru svo huggulegar.

4.9. I.B.-fulltrúar skulu skipaðir af stjórn NFMH á haustönn. Þeir skulu sjá um samskipti við I.B.-nemendur, og aðstoða þá við hvers konar vandamál. Þeir skulu einnig sjá um samskipti við I.B.-skóla innlendis og erlendis. Þetta skal gert í samráði við stjórn NFMH.

4.9.1. I.B.-fulltrúar skulu þýða á ensku allar tilkynningar og auglýsingar sem stjórn NFMH gefur út. Það er í verkahring stjórnar að koma umræddu efni til I.B.-fulltrúa.

4.10. Einherjar hafa yfirumsjón með klappliði NFMH.


4.11. Markaðsnefnd er skipuð 2-4 félagsmönnum NFMH auk markaðsstjóra.

4.11.1. Markaðsstjóri er formaður Markaðsnefndar. Markaðsstjóri er skipaður af nýkjörinni stjórn NFMH á vorönn.

4.11.2. Nýkjörin stjórn NFMH á vorönn og markaðsstjóri skipa 2-4 meðlimi í markaðsnefnd til viðbótar .

4.11.3.Markaðsnefnd skal aðstoða NFMH við auglýsinga- og styrktaröflun í miðla á vegum félagsins, t.d. Beneventum og Skaramúss

4.11.4. Markaðsnefnd skal í samstarfi við skólastjórnarfulltrúa sjá um útgáfu félagsskírteina.

4.11.5. Markaðsnefnd skal starfa náið með þeim ráðum sem sjá um viðkomandi miðla. Ráðin og stjórn skulu setja saman verðskrá sem markaðsnefnd hefur til hliðsjónar.

4.12. Undir leikfélagsstjórn starfar fjáröflunarnefnd leikfélagsins.

4.12.1. Fjáröflunarnefndin er skipuð 2-4 félagsmönnum NFMH.

4.12.2. Leikfélagsstjórn skal í samráði við stjórn NFMH skipa í fjáröflunarnefnd leikfélagsins.

4.12.3. Fjáröflunarnefndin sér um, í samráði við leikfélagsstjórn, alla auglýsinga- og styrktaröflun og/eða önnur fjármagns- og markaðsmál leikfélagsins.

4.12.4. Gjaldkeri leikfélagsstjórnar skal vera í forsvari fjáröflunarnefndar.

4.13. Húsbandsstjóri er skipaður af stjórn NFMH hverja haustönn. Hann skal hafa yfirumsjón með húsbandi og öðrum skyldum sem gleðisveitarráð hafði áður. Þar á meðal stofnun húsbands og lyklavöld af æfingaraðstöðu nemenda. Húsbandsstjóri skal vera tónlistarlega þennkjandi með suðrænt og seiðandi útlit.

4.14. Undir ritstjórn Beneventum starfar fjáröflunarnefnd Beneventum.

4.14.1. Fjáröflunarnefndin er skipuð 2-4 félagsmeðlimum NFMH.

4.14.2. Ritstjórn Beneventum í samráði við Stjórn NFMH skal skipa fjáröflunarnefnd Beneventum.

4.14.3. Fjáröflunarnefndin sér um, í samráði við ritstjórn Beneventum, alla auglýsinga- og styrktaröflun og/eða önnur fjármagns- og markaðsmál leikfélagsins.

4.14.4 Gjaldkeri ritstjórnar Beneventum skal vera í forsvari fjáröflunarnefndar.


5. FUNDIR

5.1. Skólafundir:

5.1.1. Skólafundir eru æðsta ákvörðunarvald í öllum málum er varða NFMH.

5.1.2. Félagsmenn NFMH hafa einir viðverurétt á skólafundum.

5.1.3. Breytingar á lögum NFMH fara aðeins fram á skólafundum, sbr. þó grein 10.3.4.

5.1.4. Skólafundur sér um að túlka lög NFMH.

5.1.5. Forseti NFMH boðar skriflega til skólafundar a.m.k. með tveggja skóladaga fyrirvara á a.m.k. fjórum stöðum í skólanum. Skal fundurinn einnig tilkynntur í kallkerfi skólans. Skal í fundarboði tilgreina stað og stund, auk þess sem öll þau mál er fyrir fundinum liggja skulu rækilega kynnt, þannig að félagsmenn NFMH geti tekið afstöðu til þeirra á málefnalegan hátt. Breytinga- og viðaukatillögur sem ekki hafa borist stjórn NFMH innan auglýsts tíma hljóta ekki afgreiðslu á fundinum.

5.1.6. Í það minnsta 5% félagsmanna NFMH getur krafist þess að skólafundur sé haldinn. Einfaldur meirihluti ræður samþykktum fundarins, þó verður lögum aðeins breytt með 2/3 hlutum atkvæða. Skólafundur telst því aðeins gildur að a.m.k. 10% félagsmanna séu viðstaddir.

5.1.7. Forseti NFMH setur fundinn og stjórnar kjöri fundarstjóra og fundarritara. Um skólafundi gilda almenn fundarsköp.

5.1.8. Fundargerðir skólafunda skal birta á auglýsingatöflu stjórnar NFMH innan viku frá fundi.

5.1.9. Skólafundur skal hefjast á hópsöng þar sem lög Máflundafélagsins (3.12) verða sungin við lag Bítlanna, Hey Jude.

5.1.10. Á hverjum skólastjórnarfundi skulu eftirfarandi ákvæði gilda. Forseti skal koma með hatt sinn og poka.

Þá dregur forseti skömm úr hatti sínum fyrir hvern þann meðlim, ráð, embættismann eða aðrar manneskjur sem hafa ekki skilað sínu fyrir hönd NFMH eða haft slæm áhrif á starfsemi félagsins og einnig dregur hann gott úr poka fyrir hvern þann sem þykir hafa staðið sig vel fyrir hönd NFMH.

Allir meðlimir nemendafélagsins geta skilað inn skömm eða gotti til einhvers félags, ráðs, embættismans, stjórnarmeðlim, almennum meðlim nemendafélasins eða öðrum manneskjum utan nemendafélagsins. Í skömm/gotti sinni/sínu þarf hann að skilgreina ástæður skammarinnar/gottsins og skila skömminni/gottinu til lagabreytingarnefndar 2 dögum fyrir seinasta skólafund vorannar. Lagabreytingarnefnd þarf að kanna hvort skammirnar/gottið sé/u á rökum reist/ar og ef þær/það standast/stenst ekki og eru/er uppspunni/ar. Síðan skulu allar þær skammir verða rifnar af fundarstjóra og hann skal síðan segja eftirfarandi:

Eftirfarandi skammir eru uppspuni og skulu þeir sem skrifa til sín taka.

Skömm á aðra skíta,

skárra ef í eigin barm myndir líta.

Þá mun forseti NFMH rísa upp og segja: Heyr, Heyr

En þar á eftir skal hann labba með hatt sinn og lesa allar þær skammir (allar skammir skulu vera lesnar orðréttar upp í samræmi við gildandi höfundarétt) sem fengu hljómgrunn lagabreytingarnefndar.

Eftir upplestur skammanna skal forseti segja: Og megi þeir bæta sig í framtíðinni.

Næst þar á eftir skal forseti taka poka sinn og draga þar upp öll þau gott sem að fengu hljómgrunn lagabreytingarnefndar. Eftir upplesturinn skal forseti segja:

Takk, takk og megi gleði og gæfa fylgja ykkur í framtíðinni og heiminum eftir lífið ef hann er til.

Ef að engar skammir berast inn, skal lagabreytingarnefnd taka að sér að útdeila gotti og skömmum. Enga síður má lagabreytingar nefnd útdeila gotti og skömmum jafnvel þó að mikið af ábendingum berist inn.

Tekið skal fram að ein manneskja, ráð, félag, embættismaður, stjórnarmeðlimur getur fengið bæði skömm úr hatti forseta og gott úr poka hans.

5.2. Umræðufundir:

5.2.1. Umræðufundi skal forseti NFMH boða til minnst fjórum sinnum á önn, þegar þurfa þykir. Þar skal vera fulltrúi frá hverju félagi og skal hann geta greint frá útgjöldum félagsins. Hlutverk fundanna skal vera að auka almenna umræðu um störf NFMH og auðvelda þátttöku hins almenna félagsmanns í starfi þess.

5.3. Stjórnarfundir:

5.3.1. Stjórnarfundir NFMH fara með daglega stjórnun NFMH. Þeir skulu eigi fara sjaldnar fram en vikulega og skal forseti NFMH boða til þeirra á óyggjandi hátt.

5.3.2. Stjórnarfundir hafa umboð til ákvarðanatöku í hagsmunamálum félagsmanna milli skólafunda. Allir félagsmenn í NFMH hafa tillögurétt á stjórnarfundum NFMH.

5.3.3. Stjórn NFMH situr stjórnarfundi. Félagsmenn í NFMH mega sitja fundi í umboði stjórnar NFMH.

5.3.4. Stjórnarfundur telst því aðeins gildur að meirihluti stjórnar NFMH sitji fundinn.

5.4. Stórfélagsfundir og smáfélagsfundir:

5.4.1. Stjórn NFMH skal boða til stórfélagsfundar í upphafi hverrar annar og hann sitja fulltrúar allra félaga auk embættismanna NFMH. Hlutverk hans er að skipuleggja félagsstörf annarinnar. Á fundinum skulu lagðar fram starfsáætlanir félaga NFMH fyrir önnina.

5.4.2. Smáfélagsfundir eru fundir sem stjórn NFMH boðar embættismenn og fulltrúa félaga á, til skrafs og ráðagerða, eftir þörfum.


6. KOSNINGAR

6.1. Kjörgengi og kosningarétt hafa eingöngu félagsmenn í NFMH.

6.2. Þrennar kosningar skulu haldnar á skólaárinu: vetrarkosningar og vorkosningar.

6.3. Vetrarkosningar skulu haldnar í lok haustannar. Þá skal kosið í embætti skólastjórnarfulltrúa. Í þessum kosningum hafa allir félagsmenn NFMH kosningarétt. Allir félagsmenn NFMH hafa kjörgengi utan þeir sem eru á fyrstu tveimur önnum eða útskrifast það vor.

6.4. Vorkosningar skulu haldnar í lok vorannar og skal þá kosið í eftirtalin ráð: Forseti, varaforseti og gjaldkeri. Þá skulu einnig kosnir þriggja til fimm manna listar í stjórnir eftirtalinna félaga: mímisbrunn, leikfélag, málfundarfélag, ritstjórn Fréttapésa, búðarráð og góðgerðafélag. Einnig skulu kosnir fjórir til sex manna listar í stjórn eftirtalinna félaga: lagningardagaráð, ráð Óðríks Algaula, íþróttaráð, myndbandabúa, skemmtiráð, listafélag og ritsjórn Beneventi.

6.4.1. Við kosningu í vorkosningum skal listaframboð nefna einn einstakling oddvita listans og skal hann vera í forsvari fyrir listann.

6.4.2. Oddvitar Lagningardagaráðs, leikfélags, listafélags, skemmtiráðs og ritstjóri Beneventum eru einnig í framboði til stjórnar NFMH.

6.5. Útskriftaraðall hefur hvorki kjörgengi né kosningarétt í vorkosningum.

6.6. Frambjóðandi til stjórnar NFMH verður að hafa lokið að minnsta kosti tveimur önnum í skólanum.

6.6.1. Frambjóðandi til gjaldkera NFMH skal vera orðin fullra 18 ára við upphaf haustannar
6.7. Sami einstaklingurinn má hvorki bjóða sig fram til né gegna fleiri en einni stöðu sem kosið er til innan NFMH í senn. Undir þetta ákvæði fall ekki þau embætti og stöður sem stjórn félagsins skipar í, þar hafa þeir þó forgang sem ekki gegna öðrum embætti eða stöðum.

6.8. Stjórn NFMH skal skipa þriggja manna kjörstjórn, þar af einn formann kjörstjórnar. Kjörstjórn skal annast framkvæmd kosninga og talningu í þeim. Meðlimir kjörstjórnar mega hvorki sitja í embætti innan NFMH né vera í framboði til þeirra. Kjörstjórn axlar ábyrgð gagnvart NFMH.

6.9. Að minnsta kosti átta skóladögum fyrir kosningar skal auglýst eftir frambjóðendum og eiga skrifleg framboð að hafa borist kosningastjóra fyrir auglýstan framboðsfrest til að teljast gild.

6.10. Kosningalög skulu birt opinberlega í hvert sinn sem auglýst er eftir framboðum í embætti innan NFMH.

6.11. Frambjóðendum eða fulltrúum þeirra er heimilt að vera viðstaddir talningu atkvæða í samráði við kosningastjóra.

6.12. Frambjóðendum er óheimilt að nota efni og aðstöðu NFMH til auglýsingagerðar.

6.13. Segi stjórn NFMH af sér fyrir lok kjörtímabils síns ber henni að efna til kosninga áður en hún lætur af störfum.

6.14. Láti embættismaður/stjórnarmeðlimur félags eða stjórnar NFMH af störfum fyrir lok kjörtímabils síns, skal stjórn NFMH ákveða hverju sinni hvernig staðið skal að ráðningu nýs arftaka hans. Komi ekki framboð til félags eða stöðu í nemendastjórn NFMH í vorkosningum, skal halda kosningar í upphafi haustannar. Komi þá ekki enn framboð skal nemendastjórn skipa í stöðuna.

6.15. Vanræki embættismaður/stjórnarmeðlimur félags eða stjórnar NFMH skyldur sínar, skal stjórn NFMH víkja honum úr embætti. Embættismaður/stjórnarmeðlimur sem verður fyrir brottrekstri af hendi stjórnar NFMH getur lagt fram beiðni að brottreksturinn verði borinn undir skólafund til synjunar og hefur til þess tvær vikur frá brottvikningu. Til að synjun teljist gild þarf 2/3 hluta atkvæða. Leggi embættismaðurinn/stjórnarmeðlimurinn ekki fram beiðni þess efnis innan tveggja vikna eða að synjun er felld á skólafundi stendur ákvörðun nemendastjórnar.

6.16. Ef meira en helmingur meðlima einhvers félags hafa sagt upp störfum þá skal efna til kosninga í viðkomandi félag sem fyrst.

6.17. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir í kosningum NFMH skal hlutkesti skera úr um hver nær kosningu.

6.17.1. Ef tveir eru jafnir en fleiri í framboði skal kosið aftur á milli tveggja efstu.

6.18. Ef auðir seðlar eru hlutfallslega fleiri en greidd atkvæði hæsta frambjóðanda nær hann ekki kjöri. Skal þá innan vikutíma auglýsa eftir nýjum frambjóðendum og halda í framhaldi af því nýjar kosningar. Ef einhver frambjóðandi nær enn ekki kjöri skal nemendastjórn skipa í stöðuna.

6.18.2. Ef frambjóðandinn er einn í framboði þarf hann að hljóta 2/3 til að ná kjöri

6.19. Kosningastjórar skulu birta niðurstöðu kosninga innan 24 klukkustunda eftir að kjörstað lokar að því tilskyldu að um virka daga sé að ræða.

6.20. Þeir aðilar sem taka við embættum, ráðum eða stjórn félaga innan NFMH skuldbinda sig til að fara í einu og öllu eftir lögum félagsins sem í gildi eru hverju sinni og skulu hafa til að bera þá ábyrgartilfinningu sem fylgir því að gegna starfi innan NFMH.

 

7. FJÁRMÁL

7.1. Allir skráðir nemendur í NFMH greiða félagsgjald. Stjórn NFMH ákveður félagsgjald.

7.2. Greidd félagsgjöld NFMH skulu renna í nemendasjóð ásamt öllum ágóða af starfi félaga og hópa af skemmtanahaldi. Allar tekjur og gjöld skulu fara um ávísanareikning NFMH.

7.3. Innheimta félagsgjalda er í höndum nemendastjórnar í samráði við skrifstofu skólans.

7.4. Matsala MH og Mararþaraborg hafa sjálfstæðan fjárhag sem er á ábyrgð rekstraraðila hverju sinni og skulu þeir skrifa undir samning þar að lútandi við stjórn NFMH.

7.5. Stjórn NFMH skal tryggja helstu eignir félagsins fyrir þjófnaði og skemmdum af völdum elds og vatns.

7.6. Embættismönnum og félögum ber að skila stjórn NFMH fjárhags- og framkvæmdaáætlun í upphafi hverrar annar.

7.7. Ef ágreiningsmál koma upp varðandi fjárveitingar skulu þau mál leyst fyrir skólafundi.

7.8. NFMH ber enga skyldu né ábyrgð til þess að sjá þeim sem starfa í nafni félagsins fyrir matvælum né drykkjum.

 

8. VERSLUN

8.1. Á vegum NFMH starfa Mararþaraborg og Matsala MH, hvor með sjálfstæðan fjárhag. Matsala MH er þó rekin í samráði við skólastjórn.

8.2. Matsala MH:

8.2.1 Tilgangur matsölunar er að sjá nemendum MH fyrir hollum mat á viðráðanlegu verði, auk þess sem hún sér stúdentsefnum í nemendafélaginu fyrir hlutavinnu.

8.2.2. Rekstur matsölunar er ekki í gróðaskyni og skal verðum haldið í lágmarki hverju sinni.

8.2.3. Rekstur matsölunar skal vera ákveðinn af nemendastjórn NFMH í samráði við starfandi rekstrarstjóra matsölunar. Þær ákvarðanir sem teknar verða um störf rekstarstjóra, skulu vera í samráði við hann og honum tryggt sem best starfsöryggi. Rekstrarstjóri skal skrifa undir samning við NFMH um rekstur verslunarinnar.

8.2.4. Matsala MH skal starfa allt skólaárið.

8.2.5. Matsala MH hefur sjálfstætt bókhald sem er á ábyrgð rekstrarstjóra. Það skal endurskoðað í lok hverrar annar og skal þá berast Gjaldkera NFMH.

8.2.6. Skólastjórnarfulltrúi, kosinn á haustönn, skal vera tengiliður stjórnar við rekstrarstjóra. Rekstur matsölunar er nánar ákveðinn í samningi sem stjórn NFMH og skólastjórn gera sín í milli í upphafi hvers skólaárs.

8.3. Mararþaraborg, kaffisala:

8.3.1. Tilgangur með starfrækslu Mararþaraborgar er að veita hópum innan NFMH, sem í fjárþörf eru, tækifæri til fjáröflunar. Umsóknum um rekstur Mararþaraborgar skal skilað inn til nemendastjórnar fyrir hverja önn. Nemendastjórn skal ákveða hver fær umboð fyrir rekstrinum hverju sinni.

8.3.2. Mararþaraborg skal starfa allt skólaárið.

8.3.3. Mararþaraborgarstjórar, rekstraraðilar Mararþaraborgar, skulu við embættistöku skrifa undir samning um rekstur verslunarinnar.

8.4. Allir þeir sem koma að rekstri Matsölu MH og Mararþaraborgar með einum eða öðrum hætti skulu vera gildir félagar í NFMH.


9. AÐILD NFMH AÐ SAMVINNU MILLI SKÓLA

9.1. NFMH getur tekið þátt í samstarfi milli skóla sé það samþykkt á stjórnarfundi NFMH.

9.2. Starfsemi slíks skólasamstarfs sem NFMH er aðili að má ekki stangast á við lög NFMH.

9.3. Ákveði stjórn NFMH úrsögn úr samstarfi við aðra skóla, falla sjálfkrafa úr gildi allar lagabreytingar og reglugerðir er varða viðkomandi samstarf sérstaklega. NFMH ber að virða lög samstarfs sem þáttur er tekinn í, enda stangast þau ekki á við lög NFMH.

9.4. Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema:

9.4.1. NFMH er aðili að Hagsmunaráði íslenskra framhaldsskólanema.

9.4.2. Forseti NFMH situr í Hagsmunaráði sem fulltrúi félagsmanna NFMH.

9.5. Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi (MORFÍS):

9.5.1. NFMH er aðili að MORFÍS sem er árleg mælsku- og rökræðukeppni milli framhaldsskólanema á Íslandi.

9.5.2. Dagleg afskipti á vegum NFMH af MORFÍS eru í höndum málfundafélags NFMH. Skal það jafnframt sjá um að skrá ræðulið NFMH til keppni árlega og borga þátttökugjald.

9.6. Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna:

9.6.1. NFMH tekur þátt í Gettu betur sem er árleg spurningakeppni milli framhaldsskólanna.

9.6.2. Stjórn NFMH skal skipa þjálfara og skal það gert fyrir septemberlok á ári hverju.

9.6.3. Mímisbrunnur skal fara með öll dagleg afskipti NFMH er tengjast Gettu betur.


10. UM LÖG NFMH

10.1. Stjórn NFMH er heimilt að setja reglugerðir um ýmsa þætti starfsemi NFMH stangist þær ekki á við þessi lög. Stjórnin skal kynna félögum NFMH þær reglugerðir sem hún setur í dreifibréfi innan viku frá setningu þeirra.

10.2. Breytingar á lögum NFMH fara aðeins fram á skólafundum. Lagabreytinganefnd hefur þó rétt til að samræma og lagfæra orðalag laga NFMH án innihaldsbreytinga, utan skólafunda.

10.3. Lagabreytinganefnd:

10.3.1. Lagabreytinganefnd skipa: Forseti NFMH, skólastjórnarfulltrúi kjörinn í vorkosningum ásamt einum til þremur félagsmönnum NFMH skipuðum af stjórn NFMH.

10.3.2. Hlutverk lagabreytinganefndar er að fjalla um allar tillögur að breytingum og viðbótum sem fram koma á lögum NFMH og kanna hvort þær brjóti í bága við aðra þætti laga NFMH. Þá skal nefndin samræma lögin og breytingatillögurnar með tilliti til þess að lagagreinarnar stangist ekki á. Nefndin skal einnig endurskoða lög NFMH einu sinni á ári hverju og leggja fyrir skólafund.

10.3.3. Lagabreytinganefnd skal vinna á lýðræðislegum grundvelli og gæta hlutleysis í hvívetna.

10.3.4. Lagabreytinganefnd hefur rétt til að samræma og laga orðalag laga NFMH, án innihaldsbreytinga, utan skólafundar.

10.3.5. Lagabreytinganefnd hefur rétt til að hafna lagabreytingatillögum og -viðbótum sem hún telur gagnslausar, óþarfar eða beinlínis skaðlegar starfsemi félagsins. Þó má krefjast, með stuðningi a.m.k. 10% félags

Innskráning

Glatað lykilorð