Ívar Vincent Smárason — 18.01'12
Skráning hafin í 8-liđa úrslit Mortar, Vor 2012
Skráning er hafin í 8-liða úrslit Mortar, vorið 2012. Hvað er Mortar? Þú þarft að vera vanviti (eða busi) til þess að vita ekki hvað Mortar er. Mortar er innanskóla ræðukeppni MH þar sem tvö lið keppast um hylli nemenda sem og dómara. Liðin velja innbyrðis um umræðuefni og ákveða svo hvort þau séu með eða á móti. Liðsskipan er svo talin:
Liðstjóri
Frummælandi
Meðmælandi
Stuðningsmaður
Skráningarblað hangir nú við bláu töflurnar (fyrir framan sjálfsalana í matgarði) og er skráning opin öllum meðlimum nfmh. Leikreglur og frekari upplýsingar um keppnina má finna á slóðinni: http://is.wikipedia.org/wiki/Mortar
-Kveðja, Málfó
