Ásta Heiður Tómasdóttir — 02.09'10

Leiklistarnámskeið 2010!

Jeijeij loksins! Nýtt leikár hefst með pompi og prakt á mánudaginn 6.september kl.16:00 og ætlum við að byrja á að hittast í Undirheimum en ekki á Miklagarði eins og stendur á plagatinu.
Leikstjórinn í ár heitir Bjartmar Þórðarsson og er rosa klár og skapandi. Og sætur.

Ef að þú hefur ekki áhuga á að vera í leikritinu sem leikari heldur vilt frekar gera eitthvað eins og að hanna búninga, sviðsmynd, stýra ljósum, vera sýningastjóri, semja tónlist, dansa eða eitthvað annað er alveg eins mikilvægt að mæta á námskeiðið því við förum ekki bara í beina leiklist. Sýningin í ár verður nefnilega mjög fysísk og við ætlum að blanda saman ólíkum miðlum.
Leikhópurinn sjálfur verður því líklega ekki nema 8-10 manns því svo koma svo margir að öðrum þáttum leikritsins eins og t.d. svipaður fjöldi af dönsurum, svo listdansfólk; Mætið.
Valið verður í öll þessi störf á sama tíma og það verður valið í leikhópinn. Þess vegna væri gott að láta vita sem fyrst ef þú hefur augastað á einhverju ákveðnu hlutverki innan leikritsins.

Þetta verður ekki söngleikur. Bara... nei.

Það verða gestafyrirlesarar annan hvern mánudag og við verðum því alltaf að læra nýja, fjölbreytta og skemmtilega hluti.

Svo er auðvitað eining í boði fyrir þá sem eru duglegir að mæta! Og fullt af partýum!
Við erum ekki kölluð Sleikfélagið fyrir lítið sko.

Kennt verður þrisvar í viku; Annars vegar á mánudögum þar sem öllum er skylt að mæta og hinsvegar á miðvikudögum og fimmtudögum þar sem má velja á milli daga. Hver einstaklinglingur mætir semsé tvisvar í viku.

Já hey og svo peningar... 3500 kr. kostar þessi ógleymanlega upplifun sem námskeiðið er. Innifalið er m.a. : Reynsla, menntun, gleði, PARTÝ, eining, rassinn á Bjartmari, frábær félagsskapur og ef þú ert heppin/n gætirðu öðlast dýpri skilning á eigin sálartetri.
En ekki hafa áhyggjur, þú þarft ekki að borga fyrsta daginn, mátt alveg koma og prufa.

Ókei summing it up: Mánudagurinn 6.sept, Undirheimar, 16:00, þú, við, Bjartmar.

Sjáumst!

Tilbaka á forsíðu