Sindri Ben — 25.08'10
Yfirlýsing
Í ljósi þeirra viðbragða sem nýútgefinn Fréttapési hefur fengið hjá ráðamönnum skólans viljum við í ritstjórn Fréttapésa formlega biðjast afsökunar á því innihaldi blaðsins sem gæti talist kvenfyrirlitning á einn eða annan hátt.
Aldrei var það á dagskrá ritnefndar blaðsins að stuðla að kvenfyrirlitningu. Markmiðið var að skrifa hnyttið blað sem nemendur gætu haft gaman af. Sú staðreynd að blaðið, og þó helst forsíðan, gæti verið túlkuð sem kvenfyrirlitning og gefi nýnemum ranga mynd um viðhorf okkar og/eða annarra nemenda skólans er skiljanleg. En þessi túlkun er ekki túlkun þeirra sem skrifuðu og gáfu út Fréttapésa, en eftir á að hyggja var það yfirsjón okkar að fara með efnið eins og það birtist í blaðinu.
Við viljum að sjálfsögðu ekki vera holdgervingar kvenfyrirlitningar innan veggja skólans. Auðvitað var það aldrei og mun aldrei vera ásetningur okkar.
Að því sögðu finnst okkur líka mjög leiðinlegt að vera ásakaðir um að hafa lagt upp með þá hugsón að leiðarljósi við gerð blaðsins að karlmenn séu konum æðri.
Ritstjórn Fréttapésa og stjórn NFMH

