Fréttir

Ragnar Már Jónsson — 31.08'10

Busaball NFMH 2010!!

KÆRA FÓLK Nú er komið að því! Busaball NFMH 2010 verður haldið á Broadway miðvikudaginn 8. september. ... Miðasala hefst miðvikudaginn 1. september Miðasala verður fyrir 1. og 4 árs nema 1. og 2 september og síðan opið fyrir öllum eftir það. Miðaverð fyrir NFMH: 2500 kr Utan NFMH: 3000 kr. Fram koma: FM Belfast Ultra mega teknóbandið Stefán Sykur DJ Gauti DJ Beathoven&Malfunktion Húsið opnar 10:00 og lokar 11:30. Ballið klárast síðan kl 1:00. Vatnið verður frítt í fyrsta sinn á Broadway! SNILLD. Þetta verður algjörlega holdsveikt (nýja geðveikt)!

Meira

Eva Hrund Hlynsdóttir — 30.08'10

Bókamarkaði lýkur

Kæru samnemendur! Þið hafið til 4 í dag að sækja afgangs bækur og pening í stofu 39. Eftir það fara allar bækurnar í geymslu og þá verðið þið að hafa samband við okkur stelpurnar í búðarráði í skólanum og við látum ykkur fá bækurnar/peninginn/bæði. Markaðurinn gekk framar vonum og verður annar eftir áramót! Svo ekki selja (eða brenna) bækurnar ykkar beint eftir jólaprófin, komið til okkar fyrstu vikuna í skólanum og seljið bækurnar og kaupið á gjafaverði og fáið allan peninginn fyrir.

Meira


Ástríður — 26.08'10

Busasprell

Listafélag kynnir: Busasprell 2010 Nú er eitthvað skemmtilegt á hverju kvöldi fyrir ykkur busana! Stuð!

Meira

Ýr Jóhannsdóttir — 26.08'10

Bókamarkaður

Nú fer hver að vera síðastur til þess að næla sér í ódýrar skólabækur, síðasti dagur bókamarkaðsins er á morgun, föstudag! Enn er fullt af frábærum titlum eftir sem enginn má láta framhjá sér fara t.d Twilight á 1000 kall!!!! Því er um að gera að kíkja í stofu 39 og gera góð kaup við samnemendur sína.

Meira


Sindri Ben — 25.08'10

Yfirlýsing

Í ljósi þeirra viðbragða sem nýútgefinn Fréttapési hefur fengið hjá ráðamönnum skólans viljum við í ritstjórn Fréttapésa biðjast innilegrar afsökunar á því innihaldi blaðsins sem gæti talist kvenfyrirlitning á einn eða annan hátt. Aldrei var það á dagskrá ritnefndar blaðsins að stuðla að kvenfyrirlitningu. Markmiðið var að skrifa hnyttið blað sem nemendur gætu haft gaman af.

Meira

Ástríður — 24.08'10

Busar athugið!

Ert þú busi? Ert þú í hljómsveit? Viltu fá tækifæri lífs þíns/annarinnar? Listafélag leitar að busahljómsveitum til að spila í Norðurkjallara, nánari upplýsingar, listafelag@nfmh.is Frestur til mánudagsins, 30. ágúst.

Meira


Halla Sif Svansdóttir — 24.08'10

Umsóknir í embætti!

Kæru börn, stjórnin óskar eftir einstaklingum til að fylla í eftirfarandi stöður. Viðtöl verða tekin í lok næstu viku! Nánari upplýsingar um stöðurnar má finna hér á síðunni inn í lögum NFMH.

Meira

Ragnheiður Torfadóttir — 17.08'10

BÓKAMARKAÐUR!

Vettvangur fyrir nemendur til þess að kaupa og selja skólabækur!

Meira