Fréttir

Jón Evert Pálsson — 07.06'10

Ljóðskáld athugið

Nú er tíminn til að draga fram pennann kæru MH-ingar. Ljóðverk, einn af listhópum Hins hússins er að leita eftir skáldskap ungra menntskælinga til birtingar. Í grunninn snýst Ljóðverk um að koma ljóðum til almennings með því að koma þeim fyrir á lúmskum stöðum niðri í miðbæ Reykjavíkur þar sem þau vonandi vekja eftirtekt vegfarenda. Endilega sendið inn sem flest ljóð á ljodverk@gmail.com Virðingarfyllst, starfsmenn Ljóðverka Már Másson Maack og Snorri Rafn Hallsson

Meira