Sindri Benediktsson — 26.02'10

CasioKids ball 4.mars

Elsku MH-ingar!
Þrátt fyrir það að fyrivarinn sé stuttur þá er komið að næsta balli!

Það verður haldið á Nasa, fimmtudaginn 4.mars næstkomandi í samstarfi við Hr.Örlyg.
Nú spyrja sig eflaust margir afhverju í ósköpunum við séum í samstarfi við Hr.Örlyg.
Jú við erum nefninlega í samstarfi við Hr.Örlyg og fleiri að flytja inn moðerfokking CasioKids! já fokking CasioKids! CasioKids! CasioKids!

Húsið opnar klukkan 22:00, lokar 23:30 og ballið er búið klukkan 01:00.
Fjörið byrjar um leið og er það Húsband MH sem sér um að hita fólkið upp með dansvænni balltónlist sem engann svíkur.
Eftir að þau hafa lokið við sitt stígur á svið Dj Ívar/Miri Dj set, en hann einmitt spilaði á árshátíðinni um daginn og fékk mikið lof fyrir. En þeir sem voru á árshátíðinni ættu nú að geta tekið undir það.
Þá munu stíga á stokk Íslandsvinirnir í CasioKids, en þeir slógu rækilega í gegn á síðustu Iceland Airwaves hátíð, og munu þeir trylla lýðinn til 01:00 og sjá til þess að enginn fari í vondu skapi heim.

Miðaverð er nánast ekki neitt!

NFMH: 2000 kr.
Ekki í NFMH: 2500

Við minnum á að þetta er vímuefnalaust ball!
Ölvun ógildir miðann,
munið eftir miðanum og það er skilríkjaskylda!

http://www.youtube.com/watch?v=NOGWjMGDNRM

BAAAAAAASSSSSSSSSSSSSSIIIIICCCCCCCCCCC!!

Tilbaka á forsíðu