Lárus Jón Björnsson — 23.02'10
MORFÍS
Kæru MH-ingar
Þá er komið að annarri MORFÍS keppni þessa skólaárs og munum við MH-ingar taka á móti Garðbæingum í okkar glæsilega hátíðarsal, Miklagarði. Keppnin hefst klukkan 19:30 og hvetjum við fólk til að mæta klukkan 19:00 til að mynda réttu stemmninguna!
Umræðuefni kvöldsins verður "Allur er varinn góður", og MH mæli með.
Skyldumæting fyrir alla sanna MH-inga!
Í hádeginu á miðvikudag, munu Einherjar skólans vera uppi á sal og kenna okkur hvatningarsöngvana og hita liðið upp fyrir baráttuna um kvöldið!
Sjáumst í hádeginu á miðvikudag og síðan um kvöldið í hátíðarsal MH!
