Særós Mist Hrannarsdóttir — 20.02'10

Dreymir þig um að geta dansað eins og Shakira...????

Langar þig til að læra magadans?
Dreymir þig um að geta dansað eins og Shakira....??????

Listaráð NFMH býður upp á magadansnámskeið fyrir byrjendur á fáránlega góðu verði!


Námskeiðið mun vera í íþróttasal MH á fimmtudögum frá kl 16:00-17:15 á tímabilinu 25. feb – 08. apríl (páksafrí fimmtudag 1. apríl).


Farið verður í grunnspor magadansins; áttur með mjöðmum, shimmy, mjúkar handahreyfingar og allt þar á milli. Þá verður líka kenndur dans við skemmtilegt arabískt lag. Einnig verður kennt ýmislegt um sviðsframkomu og að öðlast öryggi sem dansari.

Fjörug, framandi og skemmtileg tónlist, hressandi líkamsrækt og góð styrking fyrir dans-traustið!


Mælt er með því að fólk komi í þægilegum fötum, leggings og bolur auk þess að taka með sér slæðu sem hægt er að binda utanum mittið.

Verð:
MH-ingar: 3.500 kr
Aðrir: 4.000 kr

Ekki missa af þessu brjálæða (og ódýra) tækifæri, komdu og hristu burt jólaspikið.
Skráning á listafelag@nfmh.is!
Fyrsir koma fyrstir fá - takmarkað pláss!

Kv. Listafélag NFMH
p.s. strákar eru velkomnir, svo lengi sem þeir taka þátt og eru ekki bara að stara og slefa

Tilbaka á forsíðu