Hildur Hjörvar — 16.02'10

Breytingar á Lagnódagskrá

Enginn er fullkominn og því er svo komið að á dagskrárbæklingi Lagningardaga sem dreift var í dag og í gær eru smávægilegar villur. Við biðjumst forláts á þessu en látum hér fylgja með leiðréttingar, sem verða að auki hengdar upp hjá dagskrárplakötum um skólann.
Ást, Lagnó

Miðvikudagur:

Klukkan 10: 'Dansi dansi dúkkan mín - Nemendur framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands sýna tvö verk' á að vera 'Dansi dansi dúkkan mín - Edna Machate kennir dillandi kúbverskan salsa' og fyrir það fást 3 punktar.

Fimmtudagur:

Klukkan 14: Ræðukeppni verður milli MORFÍS-kempa MH og KENNARA.

Föstudagur:

Klukkan 9 og 12: Pókermót verður í stofu 22 en ekki 24.

Klukkan 12: Fyrir súludansnámskeið fást 4 punktar.

Maraþon:

Monty Python maraþonið verður í stofu 28 alla dagana.

Lord of the Rings maraþonið verður í stofu 23 en ekki 32.

Dylan Moran standup, Evil Dead og Gilmore Girls verða í stofu 46 en ekki 42.

 

ATH: Þáttökugjald á pókermótinu hefur verið fellt niður!

Tilbaka á forsíðu