Hjalti Vigfússon — 11.02'10
Mortar!!
Mortar, innanskóla ræðukeppni MH byrjar á morgun, föstudag, klukkan 16:00 með fyrstu viðureign 8 liða úrslita. Umræðuefnið er "Tvíkynhneigð er betri en samkynhneigð." og munu Kristín Sveins, Sunna Mjöll og Inga Rán mæla með en Sæmundur, Birna, Sigurbjartur og Hjalti á móti.
Á mánudaginn klukkan 16:00 er síðan viðgureign Garabæjar greifanna Jakobs, Kjartans, Tómasar Ken og Jón Péturs en þeir munu mæta Áslaugu, Baldvini "Partí Barta", Atla Jasonar og einhverjum FB-ing sem ég man aldrei hvað heitir. Umræðuefnið er "Money eru betri en Bitches" og munu Partí Barti og félagar mæla með en greifarnir á móti.
Þar sem að eitt lið gaf keppni komst lið Fréttapésa sjálfkrafa í undanúrslit. Þar af leiðandi mun seinasta keppni 8 liða úrslita fara fram mánudaginn eftir Lagningadaga klukkan 16:00 þar sem að mætast lið goðsagnarinnar Huga Leifssonar og lið Hildar Hjörvar.
Eins og sjá má eru mörg sjúklega skemmtileg lið í keppninni og von er á snilldar keppnum.
