Hildur Hjörvar — 10.02'10
Upphitunartónleikar Lagnó
Ástkæru samnemendur,
Eins og flestir vita verða Lagningardagar haldnir með pompi og prakt í næstu viku, 17.-19.febrúar. Dagskráin er þétt skipuð spennandi atburðum og verður dreift á upphitunartónleikum Lagningardaga sem verða haldnir í Norðurkjallara mánudaginn 15.febrúar. Framvinda Lagningardaga verður kynnt svo skyldumæting er fyrir busa og alla þá sem skilja ekkert hvað Lagnó er - en að sjálfsögðu eru allir hjartanlega velkomnir. Húsið opnar klukkan 19:00, dagskráin hefst klukkan 19:30 og lokar klukkan 23:00. Fram koma Hinir, Me, the Slumbering Napoleon, Mugison og Boba.
Tónleikarnir verða jafnframt styrktartónleikar, aðgangseyrir er einn smokkur á haus sem safnað verður fyrir íslensk-frönsku SPES hjálparsamtökin og gefin til barnaþorpa þeirra í Tógó í Afríku. Þangað koma mörg börn vegna þess að foreldrar þeirra eiga of mörg börn og geta ekki séð fyrir þeim, enda eru getnaðarvarnir í Tógó bæði dýrar og óaðgengilegar. Einnig verður tekið við hvers konar gjöfum til starfsins, s.s. stílabókum, litabókum og litum. Sjá nánar á www.spes.is.
Fyrir þá leslötu:
-upphitunartónleikar Lagningardaga 2010
-mánudaginn 15.febrúar klukkan 19:30
-dagskrárbæklingum dreift
-aðgangseyrir: einn smokkur
Við vonumst til að sjá ykkur öll hress og kát í Norðurkjallara á mánudaginn og óskum ykkur góðrar skemmtunar á Lagningardögum 2010!
Ást, Lagnó

