Sindri Ben — 09.02'10

Árshátíđ NFMH 2010

Jæja fólk!

Árshátíð NFMH verður haldin miðvikudaginn 17. febrúar, þ.e. í byrjun Lagningardaga. Veislan byrjar uppi á sal klukkan 19:00 og síðan klukkan 19:30 verður borinn fram sannkallaður hátíðarkvöldverður.

Boðið verður upp á:

Fordrykk

Í aðalrétt verða kjúklingabringur með epla og mangó chutney, kryddjurtablönduðum kartöflukoddum og sveppasósu.

Og í eftirrétt verður svo boðið upp á heita súkkulaðiköku með jarðaberjasalati og vanilluís.


Einnig verða rándýr skemmtiatriði t.d. árshátíðarmyndband Myndbandabúa en fleiri atriði verða kynnt síðar.

Skólinn býður svo nemendum upp á fríar rútuferðir að lokinni máltíð upp á Broadway þar sem ballið verður.

Húsið opnar klukkan 22:00 og húsið lokar á slaginu 23:30, þar mun fjörið taka öll völd. DJ Ívar Pétur/Miri DJ-set þeytir skífum og svo mun Bloodgroup trylla lýðinn á stóra sviðinu. Á efri hæðinni mun Danshans spila. Í herberginu niðri munu Danimal Insticts & Hilarious Jinks koma fram auk LEYNIGESTA. Ballinu lýkur kl 01.00

Miðaverð er eftirfarandi:

Ball NFMH: 2000 kr. - Ball ekki NFMH: 2500 kr.
Matur NFMH: 2000 kr. - Matur ekki NFMH: 2000 kr.
Ball og matur NFMH 3500kr. - Ball og matur ekki NFMH: 4000 kr.

Maturinn er eingöngu ætlaður nemendum MH.

Miðasala hefst núna í vikunni og verður auglýst nánar síðar inn á heimasíðu nemendafélagsins www.nfmh.is

Þetta er reyk og vímuefnalaust ball og ógildir ölvun miðann !!!!
Skilríkjaskylda og mætið með miðann ykkar elsku börn annars komist þið ekki inn !!!!!!!

Mbk. Skemmtó

p.s Kristján Hafþórsson mætir !

Tilbaka á forsíðu