Alma Mjöll Ólafsdóttir — 08.02'10
Tónlist, leikmynd, búningar og smink.
Ef eitthvað af ofangreindum orðum snerti hluta af sál þinni eða einfaldlega vakti hjá þér athygli bendi ég þér á að sækja um starf tónlistastjóra, leikmyndahönnuðar, búningameistara eða sminkara fyrir LFMH 2010. Athugið að ekki er aðeins einn sem sinnir hverju starfi.
Okkur vantar bráðgáfað og hugmyndaríkt fólk til þess að sinna þessum störfum og ef þú hefur áhuga sendu okkur línu á leikfelag@nfmh.is varðandi hæfni þína og áhuga. Þar sem fólk hefur sótt um í nokkurn tíma núna lýkur umsóknar frestinum næstkomandi föstudag kl 20:00.
Enga feimni , koma svo!
-LFMH.

