Jóhann 4rl Kristófer Stefánsson — 08.02'10

Ljósmyndakeppni í febrúar

Ljósmyndakeppni á vegum Myrkrahöfðingja NFMH verður haldin í MH í febrúar. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þann 17. febrúar, eða fyrsta dag Lagnó. Þemað í ár er 'Eirðarleysi' og verða Top 10 myndirnar prentarðar út og hengdar upp á Matgarði.Veitt verða verðlaun fyrir bestu þrjár myndirnar föstudaginn 19. febrúar.

Dómararnir eru nú ekki í verri kantinum en það eru þeir Jói Kjartans, Heiðar Kristjánsson (ljósmyndari hjá Morgunblaðinu) og Hörður Sveinsson.

Þátttakendur geta sent eina mynd (helst í góðri upplausn) og látið nafn sitt fylgja með á photo@nfmh.is

Kv. Myrkrahöfðingjar NFMH.

Tilbaka á forsíðu