Alma Mjöll Ólafsdóttir — 08.02'10
Fjáröflunar BINGÓ LFMH!
Mig langaði nú bara að minna ykkur á Bingó-ið sem haldið verður í stóra sal á morgun kl 19:00. Við í leikfélagsstjórn vonum að sem flestir sjái sér fært um að mæta ekki bara uppá það að við erum fégráðugir peningaplottarar heldur viljum við eiga gæða bingó stund með ykkur kæru samnemendur ( þó svo að peningarnir komi sér ekki illa).
Bingóspjaldið kostar 300 og tvö saman 500 kr. Veitingar verða seldar á virkilega viðráðanlegu gúrmé lágvöruverði en allur ágóði rennur í uppsetningu LFMH á leikriti aldarinnar sem frumsýnt verður 12. mars.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Kv. LFMH.

