Jón Evert Pálsson | 05.03'10
Skólafundur
Já já elskurnar mínar þið lásuð rétt það er skólafundur sextánda mars á Miklagarði, klukkan 11:10 eða í tímanum fyrir hádegishlé fyrir ykkur sem kunnið ekki á klukku.
Lárus Jón Björnsson | 28.02'10
Söngkeppni NFMH
Söngkeppni NFMH verður haldin næstkomandi föstudag í Loftkastalnum. Það kostar aðeins 500 krónur fyrir þá sem eru í NFMH og 1000 krónur fyrir aðra.
Sindri Benediktsson | 26.02'10
CasioKids ball 4.mars
Elsku MH-ingar! Þrátt fyrir það að fyrivarinn sé stuttur þá er komið að næsta balli! Það verður haldið á Nasa, fimmtudaginn 4.mars næstkomandi í samstarfi við Hr.Örlyg. Nú spyrja sig eflaust margir afhverju í ósköpunum við séum í samstarfi við Hr.Örlyg. Jú við erum nefninlega í samstarfi við Hr.Örlyg og fleiri að flytja inn moðerfokking CasioKids! já fokking CasioKids! CasioKids! CasioKids!
Lárus Jón Björnsson | 26.02'10
Magnað tilboð fyrir MH-inga á SuperSub á Nýbýlavegi!
Tilboð fyrir MH-inga á SuperSub á Nýbýlavegi! Ertu fátækur? Ertu svangur/svöng? Skelltu þá á SuperSub á Nýbýlavegi og þar bíður þín sérstakt tilboð sem þú getur ekki látið renna þér úr greipum!
Lárus Jón Björnsson | 23.02'10
MORFÍS
MH taka á móti FG-ingum miðvikudaginn 24 febrúar. Umræðuefnið er "Allur eru varinn góður" og mælir MH með!
Særós Mist Hrannarsdóttir | 20.02'10
Dreymir þig um að geta dansað eins og Shakira...????
Langar þig til að læra magadans? Listaráð NFMH býður upp á magadansnámskeið fyrir byrjendur á fáránlega góðu verði! Námskeiðið mun vera í íþróttasal MH á fimmtudögum frá kl 16:00-17:15 á tímabilinu 25. feb
Þuríður Jóhannsdóttir | 19.02'10
gledi gledi hvad?
loksins er komin viðbót í lagabanka MH! Hér er nýr hvatningarsöngur sem sunginn verður fullum hálsi á komandi keppnum. ást og friður :) -Valdís og Blær
Kristín Sveinsdóttir | 18.02'10
Miðar á GETTU BETUR!
Það eru til 75 miðar á viðureign MH og Verzló í Gettu betur.. Ég verð að dreifa miðunum kl. 12 fyrir utan miðasöluna (glerkassann) á morgun, föstudaginn 19. febrúar.
Fyrstir koma fyrstir fá!
Kristín..
Garðar Arnarsson | 18.02'10
SILENT DISCO
Plötusnúðar mh blása til "silent disco" í Norðurkjallara á Lagningardögum á morgun klukkan 13 til að hita upp fyrir helgina! Það fer þannig fram að þáttakendur sækja tónlistarmixið hér á síðunni, skella því á tónhlöðurnar sínar og svo keikja allir á þeim á sama tíma.
Hildur Hjörvar | 16.02'10
Breytingar á Lagnódagskrá
Enginn er fullkominn og því er svo komið að á dagskrárbæklingi Lagningardaga sem dreift var í dag og í gær eru smávægilegar villur. Við biðjumst forláts á þessu en látum hér fylgja með leiðréttingar, sem verða að auki hengdar upp hjá dagskrárplakötum um skólann. Ást, Lagnó
Garðar Arnarsson | 16.02'10
Dagskrá lagningardaga 2010
Dagskrá Lagningardaga 2010 er nú komin á netið! Er hún aðgengileg undir http://nfmh.is/lagno og http://www.nfmh.is/lagno/lagno.baeklingur.2010.pdf
Sigríður Ólafsdóttir | 15.02'10
MH VÍKINGURINN/VALKYRJAN 2010
MH víkingurinn/valkyrjan verður haldinn með herlegheitum á fyrsta degi lagningardaga (miðvikudaginn 17.febrúar)
Magnús Andersen | 11.02'10
Góðgerðarráð
Stjórn NFMH óskar eftir 3 einstaklingum í hið nýstofnaða góðgerðarráð. Starfið felst í því að undirbúa eina góðgerðarviku sem haldin verður á þessari önn. Nú stendur til að halda aðra frábæra góðgerðarviku og styrkja þá útlenskt málefni.
Tekið er við umsóknum á stjorn@nfmh.is. Umsóknarfresturinn er til og með 19. febrúar 2010.
Karen María Magnúsdóttir | 11.02'10
Miðasala!
Jæja elsku snúðar,
það er rétt sem þið heyrðuð. Miðasalan byrjar í dag...
Í dag og á morgun verða nemendum í MH eingöngu seldir miðar en eftir helgi verður öllum leyft að koma og næla sér í miða.
(Þið utan skóla krakkar þurfið samt að sjálfsögðu að vera með ábyrgðarmann)
Miðaverð á ballið fyrir meðlimi NFMH er 2000 kr.
Fyrir fólk ekki í NFMH kostar 2500 kr.
En fyrir þá sem ætla í matinn og á ball kostar litlar 3500 kr.
Maturinn er samt sem áður einungis ætlaður nemendum MH.
Nánari upplýsingar eru að finna á event-inu sjálfu (-:
Hlökkum til að sjá ykkur!
XOXO
-Skemmtó
p.s. ef þið ætlið að bjóða vin þá þurfiði að hafa kennitölu og heimasímanr. á hreinu! Takk!
Hjalti Vigfússon | 11.02'10
Mortar!!
Mortar, innanskóla ræðukeppni MH byrjar á morgun, föstudag, klukkan 16:00 með fyrstu viðureign 8 liða úrslita. Umræðuefnið er "Tvíkynhneigð er betri en samkynhneigð." og munu Kristín Sveins, Sunna Mjöll og Inga Rán mæla með en Sæmundur, Birna, Sigurbjartur og Hjalti á móti.
Særós Mist Hrannarsdóttir | 10.02'10
Bob, Coral og Sudden Weather Change i NKJ!
fimmtudaginn 11. Feb munu hljómsveitirnar Bob, Coral og Sudden Weather Change trylla lýðinn með frábærri tónlist í NKJ. Frítt inn fyrir alla, byrjar kl 20! Þú vilt ekki missa af þessu.. er það nokkuð... hmmm!!?
Hildur Hjörvar | 10.02'10
Skráning í viðburði á Lagningardögum
Í hádeginu á fimmtudaginn og föstudaginn verður skráning í þá viðburði Lagningardaga sem hafa takmarkaðan þátttakendafjölda. Skráning er ókeypis í alla viðburði nema pókermótið (sjá lista yfir viðburði undir 'meira'). Og munið - fyrstir koma, fyrstir fá!
Hildur Hjörvar | 10.02'10
Upphitunartónleikar Lagnó
Dagskrá Lagningardaga 2010 verður dreift á upphitunartónleikum Lagnó, sem verða haldnir í Norðurkjallara mánudaginn 15.febrúar. Framvinda Lagningardaga verður kynnt svo skyldumæting er fyrir busa og alla þá sem skilja ekkert hvað Lagnó er - en að sjálfsögðu eru allir hjartanlega velkomnir. Húsið opnar klukkan 19:00, dagskráin hefst klukkan 19:30 og lokar klukkan 23:00. Fram koma Hinir, Me, the Slumbering Napoleon, Mugison og Boba. Tónleikarnir verða jafnframt styrktartónleikar fyrir SPES hjálparsamtökin og aðgangseyrir því einn smokkur á haus.
Sólveig Klara Ragnarsdóttir | 09.02'10
Geisladiskamarkaður
Var illa brotið á þér með ice-save reikningunum? Átt þú engan pening? Átt þú geisladiska/bíómyndir/tölvuleiki/vynil/ helst klám sem þú vilt losna við? Þá erum við með svarið fyrir þig. Sendu póst á listafelag@nfmh.is eða finndu einhvern úr ráðinu. Þú þarft að verðmerkja sjálf/ur og merkja með nafni. Þetta verður sjúklega mikið gaman og á lagningadögum. KV. LISTAFÉLAG OG BÚÐARRÁÐ
Sindri Benediktsson | 09.02'10
Árshátíð NFMH 2010
Árshátíð NFMH verður haldin miðvikudaginn 17. febrúar, þ.e. í byrjun Lagningardaga. Veislan byrjar uppi á sal klukkan 19:00 og síðan klukkan 19:30 verður borinn fram sannkallaður hátíðarkvöldverður. Ballið verður svo á Broadway og húsið opnar klukkan 22:00 og húsið lokar á slaginu 23:30, þar mun fjörið taka öll völd. DJ Ívar Pétur/Miri DJ-set þeytir skífum og svo mun Bloodgroup trylla lýðinn á stóra sviðinu. Á efri hæðinni mun Danshans spila. Í herberginu niðri munu Danimal Insticts & Hilarious Jinks koma fram auk LEYNIGESTA. Ballinu lýkur kl 01.00
Alma Mjöll Ólafsdóttir | 08.02'10
Tónlist, leikmynd, búningar og smink.
Ef eitthvað af ofangreindum orðum snerti hluta af sál þinni eða einfaldlega vakti hjá þér athygli bendi ég þér á að sækja um starf tónlistastjóra, leikmyndahönnuðar, búningameistara eða sminkara fyrir LFMH 2010. Athugið að ekki er aðeins einn sem sinnir hverju starfi.
Okkur vantar bráðgáfað og hugmyndaríkt fólk til þess að sinna þessum störfum og ef þú hefur áhuga sendu okkur línu á leikfelag@nfmh.is varðandi hæfni þína og áhuga. Þar sem fólk hefur sótt um í nokkurn tíma núna lýkur umsóknar frestinum næstkomandi föstudag kl 20:00.
Enga feimni , koma svo!
-LFMH.
Alma Mjöll Ólafsdóttir | 08.02'10
Fjáröflunar BINGÓ LFMH!
Mig langaði nú bara að minna ykkur á Bingó-ið sem haldið verður í stóra sal á morgun kl 19:00. Við í leikfélagsstjórn vonum að sem flestir sjái sér fært um að mæta ekki bara uppá það að við erum fégráðugir peningaplottarar heldur viljum við eiga gæða bingó stund með ykkur kæru samnemendur ( þó svo að peningarnir komi sér ekki illa).
Bingóspjaldið kostar 300 og tvö saman 500 kr. Veitingar verða seldar á virkilega viðráðanlegu gúrmé lágvöruverði en allur ágóði rennur í uppsetningu LFMH á leikriti aldarinnar sem frumsýnt verður 12. mars.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Kv. LFMH.
Elín Elísabet Einarsdóttir | 08.02'10
Smásagna- og ljóðasamkeppni Beneventum
Ritlistamenn skólans, látið í ykkur heyra!
Jóhann Kristófer Stefánsson | 08.02'10
Ljósmyndakeppni í febrúar
Ljósmyndakeppni á vegum Myrkrahöfðingja NFMH verður haldin í MH í febrúar. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þann 17. febrúar, eða fyrsta dag Lagnó. Þemað í ár er 'Eirðarleysi' og verða Top 10 myndirnar prentarðar út og hengdar upp á Matgarði.Veitt verða verðlaun fyrir bestu þrjár myndirnar föstudaginn 19. febrúar.
Dómararnir eru nú ekki í verri kantinum en það eru þeir Jói Kjartans, Heiðar Kristjánsson (ljósmyndari hjá Morgunblaðinu) og Hörður Sveinsson.
Þátttakendur geta sent eina mynd (helst í góðri upplausn) og látið nafn sitt fylgja með á photo@nfmh.is
Kv. Myrkrahöfðingjar NFMH.
Lárus Jón Björnsson | 07.02'10
NEMENDUR vs. kennarar vika
Hversu oft hefur ykkur langað að öskra á kennarana? Hversu oft hafið þið hugsað: "nei [nafn á kennara], ónei". Við í stjórninni eru orðin hundleið á þessu og því skoruðum við á kennarana í nokkrar keppnir.
Lárus Jón Björnsson | 07.02'10
Lagningardagar og árshátíðin
Skemmtilegustu dagar MH-inga, Lagningardagar, fara fram dagana 17.til 19. febrúar. Árshátíðin verður á sínum stað, en hún verður á miðvikudeginum sautjánda.
Lárus Jón Björnsson | 07.02'10
Gettu Betur og MORFÍS
Vitað er hverjum við mætum í næstu umferðum og er skylda fyrir ÞIG að mæta á báðar þessar keppnir og hjálpa skólanum að komast alla leið í úrslitin. Krafan er sigur!
Lárus Jón Björnsson | 07.02'10
Glæný heimasíða NFMH
Velkomin/-nn á nýja og glæsilega heimasíðu NFMH. Vikulega munu nýjar fréttir birtast hér um allt það helsta sem gerist í félagslífi skólans og því er skylda fyrir þig að kíkja hingað reglulega, ef þú vilt ekki missa af neinu.
Lárus Jón Björnsson | 22.01'10
Þemavika: Íslenskt grín!
Fyrsta þemavika NFMH þessa önnina er að hefjast og verður hún ekki af verri endanum. Þemað að þessu sinni er íslenskt grín og munum við svo sannarlega bjóða uppá íslenskt grín í hæsta gæðaflokki. Frítt er inná alla atburði vikunnar fyrir meðlimi NFMH en fyrir utanskólanemendur og þá sem nenntu ekki að borga nemendafélagsgjöldin mun þetta samt bara kosta smáaura.
Halla Sif Svansdóttir | 30.11'09
Miðasala á Jólaballið
Miðasalan fyrir Jólaballið verður opin næstu daga almennt frá kl 10-13. Viljum aftur á móti vekja athygli á því að opnunartímar geta breyst en reynum þá að auglýsa það með góðum fyrirvara. Nánari upplýsingar um einstaka má finna með því að smella á
Karen María Magnúsdóttir | 26.11'09
Jólaball
Jólaballið 2009 verður haldið á skemmtistaðnum NASA þann 16. desember næstkomandi. Gísli Galdur og Samél Jón Samúelsson big band sjá um að trylla lýðinn á meðan Hypno þeytir skífum sem aldrei fyrr. Opnum kl 22:00 og lýkur ballinu kl 1:00. Miðaverð fyrir NFMH er 2.500.- og 3.000.- fyrir aðra.
Lárus Jón Björnsson | 26.11'09
Frestun á GoKart móti
Búið er að fresta GoKart mótinu þar til eftir áramót, sökum prófa og tímaleysis =) Sjáumst í GoKart eftir áramót =) jei..
Lárus Jón Björnsson | 24.11'09
Gokart mót MH
Gokart keppni framhaldsskólanna er að hefjast. Innanskólakeppni verður næstkomandi laugardag kl 20:00 og keppir sigurvegarinn í stóru framhaldsskólakeppninni síðar. Þátttökugjald er 3.900.-. Eyðublöð verða frammi á Matgarði fram að helgi. Hvetjum alla til að skrá sig og taka þátt.
Lárus Jón Björnsson | 24.11'09
Dimmision ballið
Nú líður senn að dimmision og verður hið margrómaða dimmisionball föstudagskvöldið á Hverfisbarnum. Það kostar 1500 kr inn og almenn sala hefst í hádeginu á morgun á Matgarði. Það er 18 ára aldurstakmark og við hvetjum fólk að tryggja sér miða sem fyrst þar sem einungis 240 miðar eru í boði.
Magnús Andersen | 19.11'09
Morfískeppnin á móti FSN verður sýnd á netinu
Morfískeppnin í kvöld verður í beinni útsendingu hér: http://secure.emission.is/player/?e=461ab16f-ac5c-4f9c-b4d9-6bf99b5452f5
Lárus Jón Björnsson | 18.11'09
Skólastjórnarfulltrúi fyrir næstu tvær annir!
HæHæ Ég veit við erum rosalega sein í þessu, en búið er að opna fyrir umsóknir til skólastjórnarfulltrúa næstu tvær annir. Jónas Kettel er að láta af störfum og þarf nýjan skólastjórnarfulltrúa til að taka við af honum. Hlutverk skólastjórnarfulltrúans má sjá á nfmh.is Umsóknar sendist á stjorn@nfmh.is og rennur fresturinn út mánudaginn klukkan 24:00. Kappræður verða á miðvikudaginn, kosið á fimmtudeginum og úrslit tilkynnt á föstudeginum. Ekki hika við að sækja um ef þú hefur áhuga! Kær kveðja, stjórnin
Lárus Jón Björnsson | 12.11'09
Atburðir í dag og næstu daga!
Í dag (fimmtudag): -Búðarráð verður með stórglæsilegan kökubasar. -Lárus rektor keppir við nemendur í reipitogi í íþróttasalum í hádeginu. Borgaðu 500 krónur til að keppa við hann og EF þú vinnur þá færðu stórglæsileg verðlaun =) -Kalli sögukennari varð sér úti um taekwondo-score brynju. Þegar maður sparkar í hana, kemur stigafjöldi fram eftir því hversu fast þú sparkar. Hann mun klæðast brynjunni og býður nemendum að sparka í sig fyrir 500 krónur. Þrír stigahæstu fá vegleg verðlaun =) Hvar má sparka í Kalla? Jú, þú mátt sparka í Kalla í hátíðarsalnum, Miklagarði. -Um kvöldið verður góðgerðakvöldstund í NKJ. Þar verður skemmtilegt uppboð sem enginn má missa af! Frítt inn! Hefst kl. 19:30! Föstudagur: -Í hádegishléinu mun einhver á vegum BUGL mæta upp á Miklagarð og taka á móti ágóða vikunnar. -Um kvöldið verður síðan Rave í NKJ. Hefst það klukkan 20:00 og er frítt inn! Það verður sjúk stemmning! Sunnudagur: -Fótboltamót MH verður haldið í Kórnum og hefst fyrsti leikur á slaginu 17:00. Íþróttaráð verður frammi á Matgarði til að dreifa og taka á móti eyðublöðum og borgunum. 1000 krónur á mann og minnst sjö saman í liði =) Atburður sem er must að mæta á! Fimmtudagur (eftir viku): Fyrsta MORFÍS keppni ársins! MH fer alla leið á Snæfellsnes til að keppa við FSN. Auglýst betur síðar! LEGENDARY!
Lárus Jón Björnsson | 11.11'09
FÓTBOLTAMÓT OG RAVE!
HæHæ allir saman! Sunnudaginn næsta fer fótboltamóti MH fram. Það er í Kórnum og á fólk að mæta klukkan 16:30. Fyrsti leikur hefst á slaginu 17:00 Íþróttaráð verður á Matgarði öll hádegshlé fram að helgi með eyðublöð og þurfa liðin að skila eyðublaði og borga í síðasta lagi á föstudaginn í hádegishléinu. Það eru minnst 7 saman í liði (sem byrja inná) og síðan mega vera eins margir varamenn og fólk vill! Það kostar 1000 krónur á mann! ------------- Núna á föstudaginn fer rave-ið fram í NKJ. Það hefst klukkan 20:00 og lýkur klukkan 23:30 =) FRÍTT INN! Fullt af geeeðveikum DJ-um og já, það verður brjálað stuð!!
Lárus Jón Björnsson | 10.11'09
Blóðbankabíllinn og Vodafone koma á morgun (miðvikudag)
Kæru MH-ingar Á morgun mun bíll frá blóðbankanum koma í skólann og bjóða MH-ingum að gefa blóð. Vodafone verður einnig á staðnum og munu þeir greiða 1000 krónur fyrir hvern þann sem gefur blóð, og rennur sá peningur óskiptur beint til BUGL. Við hvetjum því ALLA MH-inga að líta við í blóðbankann og styrkja tvö góð málefni í einu, blóðbankann og BUGL. Sjáumst hress og kát á morgun =)
Lárus Jón Björnsson | 09.11'09
Góðgerðarvika
Kæru MH-ingar Núna er góðgerðavika NFMH að hefjast í fyrsta sinn og vonumst við til þess að við getum öll notið hennar sem best. Allur ágóði vikunnar rennur til BUGL eins og kemur fram í meðfylgjandi skjali ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum varðandi vikuna. Viljum við í stjórninni biðja þig um að taka nokkrar mínútur frá til að lesa þetta skjal svo að þú sért undirbúinn fyrir vikuna =) Með kærri kveðju, Stjórn NFMH Dagskrágóðgerðarviku.doc
Garðar Arnarsson | 05.11'09
MH Lanið!
MH Lanið verður haldið annað kvöld í Norðurkjallara frá kl 17 til kl 12 næsta dag. Það er frítt inn og sveittri stemmningu lofað. Mættu með tölvuna, lansnúru og fjöltengi. Einhverjar veitingar seldar á staðnum. Skráning er hafin á vefnenfd@nfmh.is Allar nánari upplýsingar á Spjallinu.
Ester Auðunsdóttir | 02.11'09
GRÍMUBALL GRÍMUBALL GRÍMUBALL!
Á næstkomandi fimmtudag (5. nóv) verður grímuball NFMH! Fram koma Sykur, Pedro Pilatus soundsystem og Dj Hypno. miðaverð er 2000 kr. fyrir NFMH og 2500 kr. fyrir rest. Ballið byrjar klukkan tíu, húsið lokar hálf tólf og ballinu lýkur klukkan eitt. Mætið og styrkið Barna og unglinga geðdeild Landsspítalans. (BUGL) Kveðja Skemmtó
Lárus Jón Björnsson | 27.10'09
MORTAR!!!!!!
MORTAR - Innanhússkólaræðukeppni Menntaskólans við Hamrahlíð hefst á morgun, Miðvikudaginn 28. Október, með tveimur keppnum. Fyrri keppnin verður beint eftir stoðtíma, 15:30, og verður umræðuefnið "Lífið væri betra sem blökkumaður" Með mælir liðið "Fiction og félagar" en í því liði eru Siggi Fiction og félagar. Á móti mælir liðið "El Presidente og félagar" en í því liði eru Lalli forseti og félagar. Seinni keppnin verður beint í framhaldi af þeirri fyrstu og verður umræðuefnið í henni "Andabær". Með mælir liðið "Snilld!" en í því liði eru Daníel Perez og félagar. Á móti mælir liðið "Hannes Daði og félagar" en í því liði eru Hannes Daði og félagar. Þetta verður LEGENDALEGT.
Magnús Andersen | 21.10'09
ATH! Varðandi Pókermót
ATHUGIÐ! Skráningu fyrir pókermót lýkur kl 20:00 í kvöld, 21. október. Meðal vinninga verða gjafabréf á BK kjúkling og Serrano. Nokkrir aðrir vinningar eru væntanlegir. Það kostar ekkert að skrá sig. Sendið email á poker@nfmh.is með nafni og símanúmeri. Listi yfir borðaskipan kemur eftir að skráningu lýkur.
Sunna Rut Garðarsdóttir | 20.10'09
LEIKTU BETUR!!!
Leiktu betur verður í Norðurkjallara fimmtudaginn næstkomandi 22. okt. skráið ykkar lið á leikfelag@nfmh.is Það er enn laust pláss Öllum er velkomið að koma og horfa á þetta sælgæti fyrir eyru, augu og umfram allt hláturtaugarnar!!!
Lárus Jón Björnsson | 15.10'09
Góðgerðavika NFMH
Halló Dagana 5-13 nóvember mun góðgerðavika NFMH vera haldin. Skipulagning er öll á frumstigi, en við teljum réttast að byrja hér á smá auglýsingu. Þessir dagar eru basicly þannig að fólk segist ætla gera eitthvað, og gerir það ef X peningur safnast. Þið ágætu nemendur, safnið svo saman í púkk ef þið teljið atburðinn nógu góðan. Stefnan er að reyna að fá hin ýmsu fyrirtæki með í þessa skemmtilegu viku og mun að sjálfsögðu allur ágóðir renna óskiptur til málefnis sem enn á eftir að ákveða (endilega koma með hugmyndir að einhverju málefni). Nú þegar er NASA búið að veita okkur mjög góðan afslátt á ballinu sem mun renna til góðgerðamála, svo það eitt ætti að gefa tóninn. Svo við biðjum ykkur um að senda póst á godur@nfmh.is ef þið viljið gera eitthvað skemmtilegt og um leið styrkja eitthvað gott málefni. Það sem þarf að koma fram í póstinum er nafn, gjörningur og upphæð sem þarf að safnast Sem dæmi um það sem hægt er að gera: snoða sig, aflita á sér hárið, tattúera sig, umskera sig eða allt annað sem þið haldið að fólk myndi vilja borga fyrir. Gerum þetta að frábærri viku og hvetjum hvort annað í að láta gott af okkur leiða! Með þökkum, stjórn NFMH
Magnús Andersen | 15.10'09
Pókermót NFMH
Pókermót NFMH verður haldið á Miðgarði fimmtudaginn 22. október kl 16:00. Spilað verður No Limit Texas Hold'em, 6 manns á borði. Skráning er hafin á poker@nfmh.is. Sendið póst með nafni og símanúmeri. Veglegir vinningar í boði. ATH! Ekkert þáttökugjald er á þetta mót.
Magnús Andersen | 13.10'09
Guy Ritchie mönskvöld í NKJ!
Á þriðjudeginum eftir vetrarfrí þann 20. Október verður haldið vídeo kvöld með fríkeypis skyndifæði í boði listaráðs. Myndir eftir Guy Ritchie verða þema kvöldsins og horft verður á myndirnar Snatch, Lock Stock & two smoking barrels og Rockn'Rolla. Það kostar NÚLL krónur inn og við hvetjum fólk til að hlálpa til við að endurvekja möns-senu Mhinga. Dagskrá hefst klukkan 17:00 og lýkur 22:00. Kv. Listaráð.
Magnús Andersen | 12.10'09
Listaverk á matsöluvegginn
Sjórn NFMH auglýsir eftir tillögum að málverki sem málað verður á vegginn hjá Sómalíu. Síðasta sumar var Sómalía, matsala MHinga, tekin í gegn. Nú óskar NFMH og stjórn skólans eftir hugmyndum að málverki sem yrði málað á hvíta vegginn sem snýr út að Matgarði. Það mega margir vera saman í hóp og það má senda inn fleiri en eina tillögu. Einungis ein tillaga verður valin að lokum. Sigurvegarinn fær síðan að mála sína tillögu á vegginn. Sendið inn skyssu og upplýsingar um listamanninn/listamennina á stjorn@nfmh.is
Marteinn Marteinsson | 07.10'09
Útvarp NFMH á netinu!
Útvarp NFMH loksins kominn á netið! Linkinn má finna http://www.radio.is Einnig er hægt að hlusta á FM101,3 Beinn sími í útvarpið ef þið viljið hringja inn í þætti er; 5883054 Dagskránna er að finna [link=http://www.google.com/calendar/hosted/nfmh.is/embed?src=utvarp%40nfmh.is&ctz=Atlantic/Reykjavik]hér.[/link]
Guðjón Ingi Kristjánsson | 05.10'09
Útvarp NFMH 101,3
Nú er útvarpið komið í loftið og linkurinn á netútvarpið verður klár innan skamms. Útsending nemenda byrjar kl 15:30 í dag og verður frameftir kvöldi. Tíðni útvarpsins er 101,3!!!! Endilega hlustiði á frumlega þáttagerð MH-inga og skemmtið ykkur vel ;) Kv. Útvarpsráð
Marteinn Marteinsson | 04.10'09
Útvarp NFMH!
Eins og þið ættuð nú að vita fer Útvarp NFMH í loftið mánudaginn 5.Október Tíðnin er FM 101,3 - Einnig verður hægt að hlusta á útvarpið á netinu, nánari upplýsingar um það koma síðar. Endaleg dagskrá fer á netið í kvöld. Þið sem sóttuð um þátt hjá okkur fylgist vel með tölvupóstinum ykkar því þið gætuð verið á leið í útvarpið á morgun! kv. Útvarpsráð
Gígja Jónsdóttir | 01.10'09
Fyrsti Búðarráðsbás vetrarins!
Dagana 8. og 9. október mun Búðarráð vera með bás þar sem hönnun nemenda verður til sölu! Ef þú ert að skapa list af einhverju tagi, svo sem sauma, prjóna, mála, perla, leira og fleira og hefur áhuga á því að selja hönnun þína hafðu þá samband á budarrad@nfmh.is eða í síma 844-8937 (Gígja)
Marteinn Marteinsson | 28.09'09
Útvarpsvika NFMH!
Jæja nú er komið að fyrstu útvarpsviku MH þennan veturinn eða í næstu viku þann 5 - 9 október. Áhugasamir um að halda þátt þessa viku eru endilega beðnir um að senda umsókn á utvarp@nfmh.is Fram þarf að koma þáttakendur þáttarins, tegund tónlistar, um hvað á að tala o.s.frv. Hlökkum til að heyra frá ykkur Útvarpsráð NFMH
Katrín Vignisdóttir | 24.09'09
Óðríkur Algaula
Nú fer að styttast í lagasmíðasamkeppni MH, Óðrík Algaula. Umsóknarfresturinn rennur út 27 sept. Færri komast að en vilja svo endilega drífið ykkur. Keppnin sjálf verður svo haldin 9 okt. í hátíðarsal MH. Í umsókninni þarf að koma framm eftirfarandi: full nöfn hljómsveitarmeðlima og skóli, nefna einn tengilið sem hægt er að hafa samband við, smá lýsing á laginu og nefna þarf öll hljóðfæri. Veglegir vinningar í boði og ógó kúl dómarar. Umsóknir skulu senda á: odrikur@nfmh.is Svo krakkar, ekki láta þetta einstaka tækifæri til að öðlast frægð fara fram hjá ykkur. Kveðja Óðríkur
Lárus Jón Björnsson | 21.09'09
MH-ingar athugið! Ræðunámskeið að hefjast!
Nú er allt að gerast! Ræðunámskeið MH eru að hefjast og byrja þau í dag, í Norðurkjallara. Fyrsti dagur: Mánudaginn 21. september Annar dagur: Þriðjudaginn 22. september Þriðji dagur: Mánudaginn 28. september Hvort sem þú hefur áhuga á að reyna að komast í MORFÍS-lið MH eða bara að læra um ræðumennsku og hafa gaman þá skaltu mæta! Þetta er fyrir ALLA áhugasama! Enginn annar en Dóri DNA sér um námskeiðin og er hann einnig þjálfari MORFÍS-liðs MH núna í ár og mun hann velja liði í lok námskeiðsins. Það kostar 500 krónur á hvert kvöld EN ef þú mætir á öll þrjú kvöldin færðu eitt frítt, s.s 1000 krónur á þrjú kvöld! Hlakka til að sjá alla mæta og hafa gaman.
Magnús Andersen | 17.09'09
Myndatökur hafnar
Jæja krakkar Myndatökurnar fyrir skaramúss eru hafnar. Þær fara fram í stofu 39 (stofan vinstra megin við kvennaklósettið á matgarði). Þær standa yfir til 25. september. Síðustu árin hafa mjög margir mætt síðasta daginn þannig að ef þið viljið fá fínar myndir þá mætið þið fyrr. Teknar verða 4 myndir. Fyrsta myndin er venjuleg, en hinar 3 eru flippmyndir. Endilega pælið í því hvað þið ætlið að gera á flippmyndunum áður en þið mætið í myndatökuna. ATH! Aðeins þeir sem mæta í myndatöku fá nemendafélagskort. Í ár verða nemendafélagskortin harðspjalda og með mynd. Þau munu veita afslátt í mörgum flottum verslunum og matsölustöðum.
Arnar Heiðar Sævarsson | 16.09'09
GETTU BETUR PRUFUR!
Halló. í dag miðvikudag, og á föstudaginn verða forpróf fyrir gettur betur. í dag verða þau í stofu 11 í stoðtíma, og allir mæta. Gettu Betur liðið eyddi sumrinu sínu í eintóma bjórdrykkju og því er ekkert tryggt sæti í liðinu. Einnig er leitað að varamönnum og liðsstjórum í prófinu. Allir sem fara í þetta fá helling af gellz og tail...
Lárus Jón Björnsson | 11.09'09
PAINTBALL MÓT FRAMHALDSSKÓLANNA!
Þá er komið að því! Hið árlega framhaldsskólamót í paintball fer að hefjast og mun undankeppni MH fara fram næstkomandi miðvikudag þann 16 september! Mótið hefst klukkan 16:00 þannig að þið verðið mætt rétt fyrir það! Koma svo! Keppnin fer fram á glæsilegum og nýjum velli í Grafarvoginum. Fyrirkomulag keppninngar er þannig að fimm til sjö eru saman í liði og kostar 2900 krónur á mann. (Venjulega kostar 3900/4500 á mann þannig að um töluverðan afslátt er að ræða) Innifalið í þessum 2900 kalli er keppnisleyfi, búningur og 100 skot. Hægt er síðan að kaupa fleiri skot eftir þörfum á keppnisstað. Sá sem sigrar mótið á miðvikudaginn keppir fyrir hönd MH á framhaldsskólamótinu sjálfu! Sá sem sigrar lokakeppnina sjálfa fer svo til Bretlands og keppir á alþjóðlegu paintball móti! Einhver á vegum íþróttaráðs verður í Matgarði í öllum hléum bæði mánudag og þriðjudag til að taka á móti skráningarblöðum sem hægt er að nálgast hér fyrir neðan. Einnig verður hægt að nálgast blöð til að fylla út hjá íþróttaráði frammi á Matgarði. Í SÍÐASTA LAGI VERÐUR HÆGT AÐ SKILA SKRÁNINGA-/LEYFISBRÉFI Í SÍÐASTA HLÉI Á ÞRIÐJUDAG, 13:40-13:50! Þeir sem ekki hafa náð 18 ára aldri þurfa að skila inn leyfisbréfum sem einnig er hægt að nálgast hér að neðan og skila um leið og skráningablaði er skilað. Aðeins mega nemendur skólans taka þátt í þessu móti, og því er ekki hægt að taka einhvern vin pabba síns sem er í lögguni og góður að skjóta úr byssu með sér á mótið og rústa því! Sækja Leyfisbréf Sækja Skráningareyðublað
Lárus Jón Björnsson | 11.09'09
Námskeið leikfélagsins
HÆHÆ og HÆ allir! Núna á mánudaginn, þann 14 september, þá hefjast námskeið leikfélagsins! Námskeiðið byrjar á slaginu 17:30! Námskeiðið á mánudaginn fer fram uppi á Miklagarði, hátíðarsal skólans! Allir að mæta og hafa gaman! SJÁUMST!
Lárus Jón Björnsson | 09.09'09
RIFF BÍLLINN
Nú styttist í RIFF-hádíðina (Reykjavík International film festival) og mun sérstakur bíll á vegum RIFF mæta í MH á morgun (fimmtudag)! Klippikort og passar verða seldir á staðnum með sérstökum afslætti! Þetta verður sko algjör snilld! Bíllinn mætir á svæðið rétt fyrir hádegishlé og verður framyfir matarhléið! Svo eftir skóla heldur kvikmyndaveislan áfram en þá verður horft á einhverja snilldar mynd í NKJ og vonandi/væntanlega/örugglega verður eitthvað möns á svæðinu! Sjáumst þá fersk á morgun hjá RIFF bílnum fyrir utan skóla og svo í NKJ eftir skóla!
Lárus Jón Björnsson | 03.09'09
LEYFISBRÉF FYRIR BUSAFERÐ! MIKILVÆGT!
Kæru nýnemar. Þeir sem enn hafa ekki fengið leyfisbréf fyrir busaferðina geta náð í það hér að neðan. Hægt verður að skila leyfisbréfunum til stjórnarinnar inná Matgarði í hléunum frá 9:45 til 10:00 og 11:00 til 11:10 og svo í síðasta lagi í hádegishléinu sem er frá 12:10 til 12:40. Muna einnig eftir pening, 3500 krónur. Þeir sem ekki skila leyfisbréfum og hafa ekki borgað, komast því miður ekki í ferðina! Rútan fer stundvíslega frá MH kl. 16:00. Svo mun miðasala á busaballið einnig hefjast á morgun og kostar miði fyrir NFMH meðlimi 2000 en 2500 krónur fyrir aðra. Leyfisbref.doc
Lárus Jón Björnsson | 31.08'09
BUSAR athugið!!!
núna hefst fjörið! MÁNUDAGUR: busadjamm: tónleikar í NKJ milli 19:30 og 22:30! Frábær skemmtun og góð leið til að kynnast =) MIÐVIKUDAGUR: busakynning: í NKJ kl 20:00 kynna öll ráðin sig og þið sækjið um í framhaldinu FÖSTUDAGUR: busaferð yfir á laugardag. MEGA fjör, MEGA gaman! Sund, grill sleikur, gleði! Verður auglýst frekar í vikunni.. Kv. Strjónin
Lilja Kristjánsdóttir | 11.05'09
STREET BALL MÓÓT!
HIÐ ÁRLEGA STREETBALL MÓT NFMH streetballmót nfmh verður haldið föstudaginn 15. maí á körfubolta vellinum Miklatúni! 4-5 í liði! það er spilað 3á3 en gott að hafa 1-2 varamenn! SKRÁNING Á SPORT@NFMH.IS OG LÝKUR HENNI Á MIÐNÆTTI 14. MAÍ! NAFN LIÐS OG FYRIRLIÐA OG SÍMANÚMER FYRIRLLIÐA! EKKI MISS AF SKEMMTILEGU PRÓFLOKADJAMMI ALLIR AÐ MÆTA HVORT SEM ÞIÐ ERUÐ AÐ KEPPA EÐA EKKI. DJ Á STAÐNUM OG RÍFANDI STEMMING!
Lilja Kristjánsdóttir | 27.03'09
LAZERTAG MÓT NFMH
LAZERTAGMÓT NFMH! Mánudaginn 6. apríl verður innanskóla mót í LAZERTAG á broadway. Mótið byrjar klukkan 8 og verður bara þangað til að mótið er búið! Það eru 12 í liði og kostar 3000 kall á mann! Skráning sendist á sport@nfmh.is Fult nafn allra liðsmanna og símanúmer fyrirliða. það verður hægt að borga 1. og 2. apríl og SÍÐASTIDAGUR TIL AÐ BORGA ER 3 APRÍL! ÞAÐ VERDUR BRJÁLUÐ TÓNLIST,REYKVÉLAR OG BRJÁLUÐ LJÓS! það eru flest allir skólar búnir að halda þetta og hefur gengið vel hjá öllum. ÞAÐ MÁ ENGINN MISSA AF ÞESSU!!
Hugi Leifsson | 21.03'09
Gettu betur
Þökk sé hetjunum okkar í Gettu Betur liðinu tókst Verzlingum ekki að sigra okkur tvöfalt. Eftir æsispennandi og frábæra keppni tókst þeim að tryggja sér sigur í þríþrautinni, seinustu spurningu kvöldsins, og komu þannig MH í úrslitakeppni Gettu Betur í fyrsta skipti síðan árið 2000. Til hamingju, næst eru það bara úrslitin!
Jónas Hrafn Kettel | 11.03'09
Stuttmyndakeppni
Stuttmyndakeppni NFMH verður haldin 17. apríl næstkomandi, í samstarfi við dvoted.net. Glöggir lesendur sjá að 17. apríl er föstudagur eftir páskafrí. Farið því og takið upp myndir í páskafríinu og sendið inn umsókn á jonas@nfmh.is AWESOME vinningar í boði!
Jóhannes Ólafsson | 06.03'09
Sull í Norðurkjallaranum
Listafélagið kynnir tónlistahátíðina Sullið sem fram fer dagana 25 til 27 mars(mið.-fös.) Ef þú ert tónlistarmaður ættiru að fylgjast vel með því þessi tilkynning er um skráningu listamanna. En ef þú ert það ekki, þá læriru bara þvergrip og stofnar band! Þessir dagar í mars verða upplyfting á tónlistarlífi innan skólans þar sem fjölbreyttir listamenn, reyndir sem og amaturar, fá tækifæri á að botna sína tónlistarsköpun beint í eyru MH almúgans. Það varðar okkur ekkert hvernig tónlist þetta er eða hvort nafn sveitarinnar sé sjokkerandi, sæktu bara um ef þig langar að spila í NKJ. Skilyrði umsóknar eru: a.m.k 1 meðlimur sveitar verður að vera nemandi MH. Spila tónlist, hvernig sem hún er nú skilgreind. Til þess að sækja um sendir þú póst á listafelag@nfmh.is og setur niður allar upplýsingar um atriðið. Þar ætti að koma fram hvaða meðlimir eru, hvaða græjur eru nauðsynlegar og nafn á sveitinni. Ef spurningar vakna af einhverjum ástæðum, þá læturu þær fylgja því bréfi. Mjög einfalt... Kveðja, Listafélag NFMH.
Jónína Klara Pétursdóttir | 24.02'09
Beneventum
Hefur þú brennandi þörf á að koma einhverju frá þér? Er eitthvað sem liggur þér á hjarta? Svarið er BENEVENTUM Þar átt þú orðið Það yrði Legendary Sendu okkur mail á beneventum@nfmh.is Love Bene-girls
Jónas Hrafn Kettel | 21.02'09
Stuttmyndakeppni?
Stjórnin fékk tölvupóst á dögunum frá Rúnari Inga nokkrum. Hann vildi forvitnast hvort áhugi væri fyrir stuttmyndakeppni í skólanum, og ef svo væri vildi fyrirtækið hans "dvoted" gjarnan styðja þá keppni. Ef einhverjir ungir, upprennandi stuttmyndagerðarmenn (eða aðrir áhugasamir) eru til staðar í skólanum, þá bendi ég þeim hinum sömu á að senda tölvupóst á stjorn@nfmh.is og láta vita af sér. www.dvoted.net er vefur fyrir unga norræna kvikmyndagerðarmenn og er á vegum allra kvikmyndamiðstöðvanna á Norðurlöndunum. Kv. Stjórn
Andri Hrafn Unnarson | 16.02'09
Fatabúð Búðarráðs
Hæ babes! Búðarráð ætlar að gera sér góðan dag á lagningadögum og opna stærsta fatamarkað í sögu MH á fimmtudaginn næsta (sama dag og prom ballið). Þetta virkar þannig að þið finnið öll notuðu fötin ykkar sem þið eruð hætt að nota eða viljið losna við, verðmerkið þau og komið með þau til okkar í búðarráði ásamt lista yfir vörurnar sem þú ert að selja og það helst á þriðjudaginn eða miðvikudaginn fyrir lagnó. VIÐ seljum þau síðan fyrir ykkur og ÞIÐ fáið síðan peninginn. Við getum líka verðmerkt fyrir ykkur en þá fer einhver prósenta af peningnum ykkar til okkar sem greiðsla og við gætum kannski selt fötin á verði sem þið fýlið ekki. Þið setjið auðvitað raunsæ verð á fötin miðað við að þau eru notuð sem er oftast talsvert lægra en þið keyptuð þau á ( fer samt eftir flíkum ) en þá er bara að koma með mikið til að selja! Við tökum við öllum tegundum af bolum, peysum, buxum, kjólum, pilsum, skyrtum, skóm, töskum, höfuðfötum, slaufum, bindum, klútum o.s.fr. Þið fattið mig. Þetta er góð leið til að plögga sér pening á þessum yndislegu tímum þannig að ekki láta þetta tækifæri renna þér úr greypum, við hættum að taka við fötum eftir að við fáum ákveðið magn. Við verðum síðan í stofu 42 að blasta tónlist og vera hress á fimmtudaginn og að sjálfsögðu kíkið þið þangað og checkið á úrvalinu ef ykkur vantar föt fyrir kvöldið eða langar einfaldlega í föt á góðu verði. Ég elska ykkur öll, bæ!
Ingvar Örn Arngeirsson | 14.02'09
Skráningar á Lagnó-námskeið
Á Lagningardögum í ár verður risastórt leiklistarnámskeið þar sem Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Astrópíu og MH leikritsins í ár, verður kennari. Námskeiðið mun taka alla dagana, tvo tíma á dag frá 10-12. Það komast aðeins 25 manns að og fyrstir koma fyrstir fá! Það kostar þúsund kall að vera með, en það er ekkert því þetta verður alvöru námskeið! Drífið að skrá ykkur, ef þið eruð of sein, þá fáiði ekki að vera með. Sendið okkur póst á lagno@nfmh.is þar sem LEIKLIST verður í subject. Þurfið bara að skrifa fullt nafn í póstinn sjálfan. Svo verður líka magadansnámskeið! Særós Mist Hrannarsdóttir verður með mega magadansnámskeið á miðvikudeginum kl. 13. Aðeins 30 komast að þar - þið sækjið bara um með því að senda okkur póst með MAGADANS sem subject og þið þurfið bara að skrifa fullt nafn í póstinn sjálfan. Ekkert kostar á þetta magnaða námskeið. kv. Lagningardagaráð
Lárus Jón Björnsson | 11.02'09
Söngkeppnin
BÆBÆ Kæru samnemendur. Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir! Ólafur Ásgeirsson ætlar að slá heimsmet í nektargöngu næstko.. nei hmm, það er í apríl. Hvað var það aftur sem ég ætla að auglýsa? Vitið þið það krakkar? Veist þú það kæri lesandi? ha? ég heyri ekki í þér? Hvað er ég að auglýsa? Segðu það aaaðeins hærra? Já þarna kom það. Söngkeppnin. Söngkeppnin fer fram næstkomandi föstudag, þann 13. febrúar, í hátíðarsal okkar MH-inga. Mætið öll til að sjá söngfugla MH þenja raddböndin. Ha? Að hverju ertu að spyrja lesandi góður? Jááá, kostar inn? NEI AUÐVITAÐ KOSTAR EKKERT INN! ÞAÐ ER FRÍTT MAÐUR!!!!! Mætið öll næstkomandi föstudag og hvetjið ykkar fólk! Sigurvegarinn keppir svo fyrir hönd okkar MH-inga í söngkeppni framhaldsskólanna. Sjáumst! Kv. Óðríkur --------------------------------- -13 febrúar (næsti föstudagur) -FRÍTT INN -sigurvegarinn keppir fyrir hönd MH í söngkeppni framhaldsskólanna -MÆTTU -hehe -hátíðarsalurinn
Ari Júlíus Árnason | 09.02'09
ÚTVARP ÚTVARP ÚTVARP ÚTVARP!!!
Jæja druslur og dólgar, Útvarp NFMH er komið á tíðninni FM 101.3 og mun rúlla frá 15:30 til 22:00 Alla daga út vikuna (ásamt svít morgunþætti fyrir fólk sem bílar í skólann.) Dagráin er smekkfull af allskonar snilld og við erum að gefa fullt af einhverju svít dóti þannig veriði nú dugleg að hlusta! Annars lem ég ykkur (djók) (myndatakkinn virkar ekki:http://i44.tinypic.com/2eznryd.jpg)
Ingvar Örn Arngeirsson | 23.01'09
Lagningardagar 2009
Kæru samnemendur! Nú fer senn að líða að Lagningardögum 2009, en þeir verða 18-20 febrúar. Við í Lagningardagaráði erum í óða önn að setja saman dagskrá og nú fer hver að vera síðastur að senda inn umskókn um atburð. Þið megið vera með hvað sem er, svo lengi sem það sé löglegt. Svosem fyrilestra, námskeið, maraþon eða hverskyns listir. Endilega sendið okkur umsókn á lagno@nfmh.is -og gerið það fljótt. kveðja: Lagningardagaráð.
Hannes Daði Haraldsson | 22.01'09
MH - víkingurinn
Á Lagningardögum verður haldin hin „árlega“ keppni um titilinn eftirsótta MH-víkingurinn. Keppt verður í hinum ýmsu greinum þar sem reynir á styrk, matarlist, kænsku og gáfur. Við hverfum aftur til fornra tíma og sjáum hver er þess verðugur að hljóta þennan virðulega titil. Eins og með allar keppnir verður lítið úr þeim ef engir eru þátttakendurnir, því auglýsum við hér með eftir þátttakendum í keppnina. Skilyrði eru fá en ströng. Kunna að borða Vera með kyngimagnað stríðsöskur Vera minnst 150 kíló af hreinum vöðvamassa Vita allt um íslensku sauðkindina Kunna að fara ránshendi um bresk sjávarþorp Sendið póst á island@nfmh.is fyrir miðvikudaginn 4.febrúar.
Hugi Leifsson | 21.01'09
MORFÍS MH - VÍ
Föstudaginn 23. Janúar á merkur atburður sér stað. Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verzlunarskóli Íslands mætast í ræðukeppni í fyrsta sinn síðan í úrslitum MORFÍS árið 2004, þegar Verzló vann með einu stigi. Búist er við að þetta verði ein svakalegasta keppni MORFÍS í ár, enda bæði liðin talin með sterkustu liðum MORFÍS ef ekki þau sterkustu, og það er óhætt að segja að þetta sé algjör skyldumæting. Keppnin mun fara í fram í Blá Salnum í Verzló (sem er oft kallaður ljónagryfjan) klukkan 20:00 og eru MH-ingar hvattir til að fjölmenna á staðinn til að styðja sína menn tryllingslega vel, og verða vitni að einhverri rosalegustu MORFÍS keppni sem þeir munu sjá. Umræðuefnið verður að þessu sinni "Nýja Ísland" og mæla MH með en Verzló á móti svo þessi keppni kemur aldeilis aldeilis samfélaginu í dag við. MH hefur harma að hefna, og þegar MH þráir hefnd, er það ekki eitthvað sem þið viljið missa af. Það er frítt inn, ef þú mætir ekki ertu þorpari.
Hannes Daði Haraldsson | 19.01'09
Silfurdrengirnir okkar!
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð keppti í gær Handknattleiksmóti Framhaldsskólanna. Liðið okkar komst í úrslit mótsins, þar sem við kepptum á móti Borgarholtsskóla. Því miður spilaði liðið ekki eins vel og í hinum leikjum mótsins í úrslitaleiknum og voru lokatölur 22-15 þeim í vil. Frábær árangur samt sem áður og silfrið okkar á þessu fyrsta handknattleiksmóti framhaldsskólanna. Liðið skipuðu: Guðrún Ósk Jónas Marteinsson Sveinn Guðberg Björgvin Birkir Finnur Þ. Helgason Brynjólfur Stefánsson Atli Már Báruson Matthías Daðason Björn Steinar Alexandre Tselichtchev Herbert Ingi Sigfússon Brynjar Guðnason En þeir tveir síðastnefndu sáu einnig um þjálfun liðsins.
Hákon Sæberg Björnsson | 19.01'09
MORTAR
Eins og sumir hafa ef til vill tekið eftir eru umsóknir í MORTAR (innanskólaræðukeppni MH) hafnar. Auglýsing hefur verið sett upp á matgarði en vegna tæknilegra erfiðleika hafa ekki komið neinar upplýsingar um hana á netið. Umsóknir og/eða spurningar skal senda á malfundafelag@nfmh.is Þar skulu koma fram nöfn liðsmanna (4 talsins) og símanúmer tengiliðar. Á auglýsingunni á matgarði stendur að umsóknafrestur renni út mánudaginn 19. en hann hefur nú verið framlengdur vegna netklúðursins. Fyrstu 8 liðin til að sækja um komast að og er því um að gera að skrá sig sem fyrst og hafa þá sem mestan tíma til undirbúnings. -málfundaf.
Þorfinnur Hannesson | 16.01'09
Söngkeppni MH
Nú er komið að því að sækja um í söngkeppninni sem mun verða haldin föstudaginn 13. febrúar. á hátíðarsal MH, Miklagarði. Það mun vera hljómsveit sem spilar undir en það er auðvitað líka leyfilegt að vera með sína eigin. UMSÓKNARFRESTUR BYRJAR í DAG FÖSTUDAGINN 16. JANÚAR OG LÝKUR MIÐVIKUDAGINN 28. JANÚAR. FLÝTIÐ YKKKUR AÐ SÆKJA UM ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER MJÖG HÆPIÐ AÐ UMSÓKNARFRESTURINN VERÐI LENGDUR. Í umsókninni þarf að koma fram: - Full nöfn þáttakenda - Nafn á lagi (má vera bæði cover og frumsamið) - Taka fram hvort að sá sem er að taka þátt ætli að láta hljómsveitina sem verður á staðnum spila undir eða vera með eigin hljómsveit. - Ef að söngvarinn/söngkonan er með sína eigin hljómsveit þá þarf að koma fram á hvaða hljóðfæri hver spilar og einnig nöfn hljómsveitarmeðlima - Allar sérþarfir(vonandi fáar!) SENDIST Á odrikur@nfmh.is !!!! Síðan er fínt að minna á að ef að þið ætlið að notast við hljómsveitina til að spila undir þá þurfið þið að redda nótum svo þeir geti lært lagið ykkar. En það er seinni tíma vandamál. Flýtið ykkur að sækja um, kv. Óðríkur Algaula.