Lárus Jón Björnsson — 07.02'10

NEMENDUR vs. kennarar vika

Hversu oft hefur ykkur langað að öskra á kennarana? Hversu oft hafið þið hugsað: "nei [nafn á kennara], ónei". Við í stjórninni eru orðin hundleið á þessu og því skoruðum við á kennarana í nokkrar keppnir.

Mánudagur:
Uppi á Miklagarði í hádegishléinu munu helstu kveðskapssnillingar skólans mætast. Hvort hafa kennarar beittari tungu, eða nemendur?
                          Komdu núna kennari
                          En mundu, ekki hrapa
                          Ég er góður nemandi
                          Og fyrir mér munt þú tapa!

Þriðjudagur:
Stálin stinn með badminton spaðana og fluguna (kallast það ekki annars fluga á badmintoni?). Tvíliðaleikur af bestu gerð. Federer hvað? Williams systurnar hvað? Íþróttsalurinn, beint eftir skóla, 15:30!

Miðvikudagur:
Besta íþrótt í heimi. Bestu leikmenn í heimi. Besti völlur í heimi.. nei kannski komið gott? Nemendur munu mæta með sitt sterkasta lið, en hvað gera kennararnir? Mun Logi Ólafsson fá nokkra KR-inga að láni? Íþróttasalurinn, 15:30, fótbolti!


                Nemandi: "Bíddu, ég vissi ekki að Björgólfur Takefusa væri kennari í skólanum !?"
                Logi: "jú, hann er það núna. hahahahahahahaha"

Fimmtudagur:
Kalli "sögukennari" Jordan, Kent "legend" Iverson, Lárus "rektor" Brenton Birmingham og fleiri. Já, sögur ganga af körfuboltaliði kennaranna. En fólk fær martraðir þegar það heyrir af körfuboltaliði nemenda. 15:30, beint eftir skóla, íþróttasalur.

Föstudagur:
Á föstudeginum mun gáfaðasti kennari skólans mæta gáfaðasta nemanda skólans, í gáfuðustu "íþrótt" heims. Uppi á Miklagarði, í hádegishléinu, og verður kryddað uppá skákina með lýsingu eins nemanda og eins kennara.



Já kæru nemendur, þetta er frábær leið til að hita upp fyrir Lagningardaga og er skylda að ÞÚ mætir á alla þessa viðburði og styðjir þína menn áfram!

Tilbaka á forsíðu