Lárus Jón Björnsson — 07.02'10
Lagningardagar og árshátíđin
Kæru MH-ingar
Nú styttist í Lagningardaga. Sumir þekkja þetta en fyrir aðra er þetta alveg glænýtt. Dagarnir fara sem sagt þannig fram að engin venjuleg kennsla er frá miðvikudegi til föstudags. Í boði verða fullt af námskeiðum, fyrirlestrum, sjónvarps-seríu-maraþonum, tölvuleikjaherbergjum og margt fleira. ÞÚ nemandi góður, þarft að mæta á ákveðið marga viðburði og safna punktum. Þegar þú hefur safnað svo og svo mörgum punktum þá hefur þú náð fullnægjandi mætingu fyrir þessa daga. Ef þú nærð því ekki, þá færðu skráða fjarvist á Innu, og hefur það slæm áhrif á mætingareinkunnina þína.
Zombie námskeiðin hans Ara, FIFA mót Kóngsins og námskeiðið "Hvernig er að vera Lárus" í umsjá míns og nafna míns, Lárusar rektors, er aðeins örlítið brot af því sem í boði verður á þessum skemmtilegu dögum.
Um kvöldið á miðvikudeginum er svo árshátíð skólans. Ballið er á Brodway og síðan býðst nemendum að hita upp fyrir ballið með því að mæta í mat í MH og sjá um leið árshátíðarmyndina og önnur stórskemmtileg skemmtiatriði.
Miðasala í matinn og á ballið hefst síðar og verður auðvitað auglýst vel þegar þar að kemur.
Dagskrá Lagningardaga verður einnig vel auglýst þegar nær dregur, svo mikilvægt er að þú kíkjir oft og reglulega inná nfmh.is.
