Lárus Jón Björnsson — 07.02'10
Glćný heimasíđa NFMH
Velkomin/-nn á nýja og glæsilega heimasíðu NFMH. Vikulega munu nýjar fréttir birtast hér um allt það helsta sem gerist í félagslífi skólans og því er skylda fyrir þig að kíkja hingað reglulega, ef þú vilt ekki missa af neinu.
Vissulega geta verið einhverjar villur á síðunni, eins og gjarnan gerist þegar um eitthvað nýtt er að ræða, og ef það er eitthvað sérstakt sem þú tekur eftir, ekki hika við að senda póst á stjorn@nfmh.is og láta okkur vita.
Svo ég fari nú aðeins inná það sem koma skal á allra næstu vikum, þá er einna helst að nefna NEMENDUR vs. kennarar vika, þar sem við fáum loksins tækifæri til að sýna þessum kennurum hvað í okkur býr. Í þessari viku verður keppt í einni keppni á dag og er þetta um leið gott tækifæri til að hita upp fyrir Lagningardaga, en þeir eru einmitt vikuna eftir. 17. - 19. febrúar eru Lagningardagar og árshátíðin verður á miðvikudeginum. Einnig ber að nefna söngkeppnina sem verður haldin 5. mars, en frestur til að sækja um í hana rennur út að miðnæti á mánudeginum 8. febrúar.
En að lokum, viljum við bara bjóða ykkur velkominn hingað og vonandi eru þið jafn stolt af síðunni og við í stjórn NFMH.

