Lárus Jón Björnsson — 07.02'10
Gettu Betur og MORFÍS
Kæru MH-ingar
Næsta Gettu Betur keppni MH fer fram í Sjónvarpshúsinu, laugardaginn 20 febrúar, og er hún á móti smáskólanum hinum meginn við Kringlumýrarbrautina, Verzló. Takmarkaður fjöldi sæta er í stúdíói sjónvarpsins, þannig að því miður komast ekki allir að sem vilja. En hinir munu bara styðja liðið okkar heima í stofu. Keppnin verður auglýst betur þegar nær dregur.
MORFÍS liðið okkar mun mæta Garðbæingum, nánar tiltekið FG. Dagsetning á keppninni er ekki komin á hreint, en það er skylda fyrir alla að mæta, sama hvort keppnin er í MH eða í Garðabænum, og styðja við strákana okkar (+ Prins Valiant), í keppninni sem kemur okkur nær úrslitunum.
Báðar keppnirnar verða auglýstar betur síðar.
P.s ég vil minna á að Ingi Þór, Gettu Betur kempa, mun framkvæma loforð sitt úr Góðgerðavikunni frá seinustu önn og bjóða Evu María á deit í beinni útsendingu. Eða já, það er eins gott að hann standi við það =)

