Fréttir
Halla Sif Svansdóttir — 30.11'09
Miðasala á Jólaballið
Miðasalan fyrir Jólaballið verður opin næstu daga almennt frá kl 10-13. Viljum aftur á móti vekja athygli á því að opnunartímar geta breyst en reynum þá að auglýsa það með góðum fyrirvara. Nánari upplýsingar um einstaka má finna með því að smella á
Karen María Magnúsdóttir — 26.11'09
Jólaball
Jólaballið 2009 verður haldið á skemmtistaðnum NASA þann 16. desember næstkomandi. Gísli Galdur og Samél Jón Samúelsson big band sjá um að trylla lýðinn á meðan Hypno þeytir skífum sem aldrei fyrr. Opnum kl 22:00 og lýkur ballinu kl 1:00. Miðaverð fyrir NFMH er 2.500.- og 3.000.- fyrir aðra.
Lárus Jón Björnsson — 26.11'09
Frestun á GoKart móti
Búið er að fresta GoKart mótinu þar til eftir áramót, sökum prófa og tímaleysis =) Sjáumst í GoKart eftir áramót =) jei..
Lárus Jón Björnsson — 24.11'09
Gokart mót MH
Gokart keppni framhaldsskólanna er að hefjast. Innanskólakeppni verður næstkomandi laugardag kl 20:00 og keppir sigurvegarinn í stóru framhaldsskólakeppninni síðar. Þátttökugjald er 3.900.-. Eyðublöð verða frammi á Matgarði fram að helgi. Hvetjum alla til að skrá sig og taka þátt.
Lárus Jón Björnsson — 24.11'09
Dimmision ballið
Nú líður senn að dimmision og verður hið margrómaða dimmisionball föstudagskvöldið á Hverfisbarnum. Það kostar 1500 kr inn og almenn sala hefst í hádeginu á morgun á Matgarði. Það er 18 ára aldurstakmark og við hvetjum fólk að tryggja sér miða sem fyrst þar sem einungis 240 miðar eru í boði.
Magnús Andersen — 19.11'09
Morfískeppnin á móti FSN verður sýnd á netinu
Morfískeppnin í kvöld verður í beinni útsendingu hér: http://secure.emission.is/player/?e=461ab16f-ac5c-4f9c-b4d9-6bf99b5452f5
Lárus Jón Björnsson — 18.11'09
Skólastjórnarfulltrúi fyrir næstu tvær annir!
HæHæ Ég veit við erum rosalega sein í þessu, en búið er að opna fyrir umsóknir til skólastjórnarfulltrúa næstu tvær annir. Jónas Kettel er að láta af störfum og þarf nýjan skólastjórnarfulltrúa til að taka við af honum. Hlutverk skólastjórnarfulltrúans má sjá á nfmh.is Umsóknar sendist á stjorn@nfmh.is og rennur fresturinn út mánudaginn klukkan 24:00. Kappræður verða á miðvikudaginn, kosið á fimmtudeginum og úrslit tilkynnt á föstudeginum. Ekki hika við að sækja um ef þú hefur áhuga! Kær kveðja, ...
Lárus Jón Björnsson — 12.11'09
Atburðir í dag og næstu daga!
Í dag (fimmtudag): -Búðarráð verður með stórglæsilegan kökubasar. -Lárus rektor keppir við nemendur í reipitogi í íþróttasalum í hádeginu. Borgaðu 500 krónur til að keppa við hann og EF þú vinnur þá færðu stórglæsileg verðlaun =) -Kalli sögukennari varð sér úti um taekwondo-score brynju. Þegar maður sparkar í hana, kemur stigafjöldi fram eftir því hversu fast þú sparkar. Hann mun klæðast brynjunni og býður nemendum að sparka í sig fyrir 500 krónur. Þrír stigahæstu fá vegleg verðlaun =) Hvar má ...

