Fréttir
Lárus Jón Björnsson — 27.10'09
MORTAR!!!!!!
MORTAR - Innanhússkólaræðukeppni Menntaskólans við Hamrahlíð hefst á morgun, Miðvikudaginn 28. Október, með tveimur keppnum. Fyrri keppnin verður beint eftir stoðtíma, 15:30, og verður umræðuefnið "Lífið væri betra sem blökkumaður" Með mælir liðið "Fiction og félagar" en í því liði eru Siggi Fiction og félagar. Á móti mælir liðið "El Presidente og félagar" en í því liði eru Lalli forseti og félagar. Seinni keppnin verður beint í framhaldi af þeirri fyrstu og verður umræðuefnið í henni "Andabær". ...
Magnús Andersen — 21.10'09
ATH! Varðandi Pókermót
ATHUGIÐ! Skráningu fyrir pókermót lýkur kl 20:00 í kvöld, 21. október. Meðal vinninga verða gjafabréf á BK kjúkling og Serrano. Nokkrir aðrir vinningar eru væntanlegir. Það kostar ekkert að skrá sig. Sendið email á poker@nfmh.is með nafni og símanúmeri. Listi yfir borðaskipan kemur eftir að skráningu lýkur.
Sunna Rut Garðarsdóttir — 20.10'09
LEIKTU BETUR!!!
Leiktu betur verður í Norðurkjallara fimmtudaginn næstkomandi 22. okt. skráið ykkar lið á leikfelag@nfmh.is Það er enn laust pláss Öllum er velkomið að koma og horfa á þetta sælgæti fyrir eyru, augu og umfram allt hláturtaugarnar!!!
Lárus Jón Björnsson — 15.10'09
Góðgerðavika NFMH
Halló Dagana 5-13 nóvember mun góðgerðavika NFMH vera haldin. Skipulagning er öll á frumstigi, en við teljum réttast að byrja hér á smá auglýsingu. Þessir dagar eru basicly þannig að fólk segist ætla gera eitthvað, og gerir það ef X peningur safnast. Þið ágætu nemendur, safnið svo saman í púkk ef þið teljið atburðinn nógu góðan. Stefnan er að reyna að fá hin ýmsu fyrirtæki með í þessa skemmtilegu viku og mun að sjálfsögðu allur ágóðir renna óskiptur til málefnis sem enn á eftir að ákveða ...
Magnús Andersen — 15.10'09
Pókermót NFMH
Pókermót NFMH verður haldið á Miðgarði fimmtudaginn 22. október kl 16:00. Spilað verður No Limit Texas Hold'em, 6 manns á borði. Skráning er hafin á poker@nfmh.is. Sendið póst með nafni og símanúmeri. Veglegir vinningar í boði. ATH! Ekkert þáttökugjald er á þetta mót.
Magnús Andersen — 13.10'09
Guy Ritchie mönskvöld í NKJ!
Á þriðjudeginum eftir vetrarfrí þann 20. Október verður haldið vídeo kvöld með fríkeypis skyndifæði í boði listaráðs. Myndir eftir Guy Ritchie verða þema kvöldsins og horft verður á myndirnar Snatch, Lock Stock & two smoking barrels og Rockn'Rolla. Það kostar NÚLL krónur inn og við hvetjum fólk til að hlálpa til við að endurvekja möns-senu Mhinga. Dagskrá hefst klukkan 17:00 og lýkur 22:00. Kv. Listaráð.
Magnús Andersen — 12.10'09
Listaverk á matsöluvegginn
Sjórn NFMH auglýsir eftir tillögum að málverki sem málað verður á vegginn hjá Sómalíu. Síðasta sumar var Sómalía, matsala MHinga, tekin í gegn. Nú óskar NFMH og stjórn skólans eftir hugmyndum að málverki sem yrði málað á hvíta vegginn sem snýr út að Matgarði. Það mega margir vera saman í hóp og það má senda inn fleiri en eina tillögu. Einungis ein tillaga verður valin að lokum. Sigurvegarinn fær síðan að mála sína tillögu á vegginn. Sendið inn skyssu og upplýsingar um listamanninn/listamennina á ...
Marteinn Marteinsson — 07.10'09
Útvarp NFMH á netinu!
Útvarp NFMH loksins kominn á netið! Linkinn má finna http://www.radio.is Einnig er hægt að hlusta á FM101,3 Beinn sími í útvarpið ef þið viljið hringja inn í þætti er; 5883054 Dagskránna er að finna [link=http://www.google.com/calendar/hosted/nfmh.is/embed?src=utvarp%40nfmh.is&ctz=Atlantic/Reykjavik]hér.[/link]
