Fréttir
Marteinn Marteinsson — 28.09'09
Útvarpsvika NFMH!
Jæja nú er komið að fyrstu útvarpsviku MH þennan veturinn eða í næstu viku þann 5 - 9 október. Áhugasamir um að halda þátt þessa viku eru endilega beðnir um að senda umsókn á utvarp@nfmh.is Fram þarf að koma þáttakendur þáttarins, tegund tónlistar, um hvað á að tala o.s.frv. Hlökkum til að heyra frá ykkur Útvarpsráð NFMH
Katrín Vignisdóttir — 24.09'09
Óðríkur Algaula
Nú fer að styttast í lagasmíðasamkeppni MH, Óðrík Algaula. Umsóknarfresturinn rennur út 27 sept. Færri komast að en vilja svo endilega drífið ykkur. Keppnin sjálf verður svo haldin 9 okt. í hátíðarsal MH. Í umsókninni þarf að koma framm eftirfarandi: full nöfn hljómsveitarmeðlima og skóli, nefna einn tengilið sem hægt er að hafa samband við, smá lýsing á laginu og nefna þarf öll hljóðfæri. Veglegir vinningar í boði og ógó kúl dómarar. Umsóknir skulu senda á: odrikur@nfmh.is Svo krakkar, ekki l ...
Lárus Jón Björnsson — 21.09'09
MH-ingar athugið! Ræðunámskeið að hefjast!
Nú er allt að gerast! Ræðunámskeið MH eru að hefjast og byrja þau í dag, í Norðurkjallara. Fyrsti dagur: Mánudaginn 21. september Annar dagur: Þriðjudaginn 22. september Þriðji dagur: Mánudaginn 28. september Hvort sem þú hefur áhuga á að reyna að komast í MORFÍS-lið MH eða bara að læra um ræðumennsku og hafa gaman þá skaltu mæta! Þetta er fyrir ALLA áhugasama! Enginn annar en Dóri DNA sér um námskeiðin og er hann einnig þjálfari MORFÍS-liðs MH núna í ár og mun hann velja liði í lok námskeiðsins ...
Magnús Andersen — 17.09'09
Myndatökur hafnar
Jæja krakkar Myndatökurnar fyrir skaramúss eru hafnar. Þær fara fram í stofu 39 (stofan vinstra megin við kvennaklósettið á matgarði). Þær standa yfir til 25. september. Síðustu árin hafa mjög margir mætt síðasta daginn þannig að ef þið viljið fá fínar myndir þá mætið þið fyrr. Teknar verða 4 myndir. Fyrsta myndin er venjuleg, en hinar 3 eru flippmyndir. Endilega pælið í því hvað þið ætlið að gera á flippmyndunum áður en þið mætið í myndatökuna. ATH! Aðeins þeir sem mæta í myndatöku fá nemendaf ...
Arnar Heiðar Sævarsson — 16.09'09
GETTU BETUR PRUFUR!
Halló. í dag miðvikudag, og á föstudaginn verða forpróf fyrir gettur betur. í dag verða þau í stofu 11 í stoðtíma, og allir mæta. Gettu Betur liðið eyddi sumrinu sínu í eintóma bjórdrykkju og því er ekkert tryggt sæti í liðinu. Einnig er leitað að varamönnum og liðsstjórum í prófinu. Allir sem fara í þetta fá helling af gellz og tail...
Lárus Jón Björnsson — 11.09'09
PAINTBALL MÓT FRAMHALDSSKÓLANNA!
Þá er komið að því! Hið árlega framhaldsskólamót í paintball fer að hefjast og mun undankeppni MH fara fram næstkomandi miðvikudag þann 16 september! Mótið hefst klukkan 16:00 þannig að þið verðið mætt rétt fyrir það! Koma svo! Keppnin fer fram á glæsilegum og nýjum velli í Grafarvoginum. Fyrirkomulag keppninngar er þannig að fimm til sjö eru saman í liði og kostar 2900 krónur á mann. (Venjulega kostar 3900/4500 á mann þannig að um töluverðan afslátt er að ræða) Innifalið í þessum 2900 kalli er ...
Lárus Jón Björnsson — 11.09'09
Námskeið leikfélagsins
HÆHÆ og HÆ allir! Núna á mánudaginn, þann 14 september, þá hefjast námskeið leikfélagsins! Námskeiðið byrjar á slaginu 17:30! Námskeiðið á mánudaginn fer fram uppi á Miklagarði, hátíðarsal skólans! Allir að mæta og hafa gaman! SJÁUMST!
Lárus Jón Björnsson — 09.09'09
RIFF BÍLLINN
Nú styttist í RIFF-hádíðina (Reykjavík International film festival) og mun sérstakur bíll á vegum RIFF mæta í MH á morgun (fimmtudag)! Klippikort og passar verða seldir á staðnum með sérstökum afslætti! Þetta verður sko algjör snilld! Bíllinn mætir á svæðið rétt fyrir hádegishlé og verður framyfir matarhléið! Svo eftir skóla heldur kvikmyndaveislan áfram en þá verður horft á einhverja snilldar mynd í NKJ og vonandi/væntanlega/örugglega verður eitthvað möns á svæðinu! Sjáumst þá fersk á morgun hj ...
