Fréttir

Ingvar Örn Arngeirsson — 23.01'09

Lagningardagar 2009

Kæru samnemendur! Nú fer senn að líða að Lagningardögum 2009, en þeir verða 18-20 febrúar. Við í Lagningardagaráði erum í óða önn að setja saman dagskrá og nú fer hver að vera síðastur að senda inn umskókn um atburð. Þið megið vera með hvað sem er, svo lengi sem það sé löglegt. Svosem fyrilestra, námskeið, maraþon eða hverskyns listir. Endilega sendið okkur umsókn á lagno@nfmh.is -og gerið það fljótt. kveðja: Lagningardagaráð.

Meira

Hannes Daði Haraldsson — 22.01'09

MH - víkingurinn

Á Lagningardögum verður haldin hin „árlega“ keppni um titilinn eftirsótta MH-víkingurinn. Keppt verður í hinum ýmsu greinum þar sem reynir á styrk, matarlist, kænsku og gáfur. Við hverfum aftur til fornra tíma og sjáum hver er þess verðugur að hljóta þennan virðulega titil. Eins og með allar keppnir verður lítið úr þeim ef engir eru þátttakendurnir, því auglýsum við hér með eftir þátttakendum í keppnina. Skilyrði eru fá en ströng. Kunna að borða Vera með kyngimagnað stríðsöskur Vera minnst 150 k ...

Meira


Hugi Leifsson — 21.01'09

MORFÍS MH - VÍ

Föstudaginn 23. Janúar á merkur atburður sér stað. Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verzlunarskóli Íslands mætast í ræðukeppni í fyrsta sinn síðan í úrslitum MORFÍS árið 2004, þegar Verzló vann með einu stigi. Búist er við að þetta verði ein svakalegasta keppni MORFÍS í ár, enda bæði liðin talin með sterkustu liðum MORFÍS ef ekki þau sterkustu, og það er óhætt að segja að þetta sé algjör skyldumæting. Keppnin mun fara í fram í Blá Salnum í Verzló (sem er oft kallaður ljónagryfjan) klukkan 20:00 og ...

Meira

Hannes Daði Haraldsson — 19.01'09

Silfurdrengirnir okkar!

Lið Menntaskólans við Hamrahlíð keppti í gær Handknattleiksmóti Framhaldsskólanna. Liðið okkar komst í úrslit mótsins, þar sem við kepptum á móti Borgarholtsskóla. Því miður spilaði liðið ekki eins vel og í hinum leikjum mótsins í úrslitaleiknum og voru lokatölur 22-15 þeim í vil. Frábær árangur samt sem áður og silfrið okkar á þessu fyrsta handknattleiksmóti framhaldsskólanna. Liðið skipuðu: Guðrún Ósk Jónas Marteinsson Sveinn Guðberg Björgvin Birkir Finnur Þ. Helgason Brynjólfur Stefánsson ...

Meira


Hákon Sæberg Björnsson — 19.01'09

MORTAR

Eins og sumir hafa ef til vill tekið eftir eru umsóknir í MORTAR (innanskólaræðukeppni MH) hafnar. Auglýsing hefur verið sett upp á matgarði en vegna tæknilegra erfiðleika hafa ekki komið neinar upplýsingar um hana á netið. Umsóknir og/eða spurningar skal senda á malfundafelag@nfmh.is Þar skulu koma fram nöfn liðsmanna (4 talsins) og símanúmer tengiliðar. Á auglýsingunni á matgarði stendur að umsóknafrestur renni út mánudaginn 19. en hann hefur nú verið framlengdur vegna netklúðursins. Fyrstu 8 ...

Meira

Þorfinnur Hannesson — 16.01'09

Söngkeppni MH

Nú er komið að því að sækja um í söngkeppninni sem mun verða haldin föstudaginn 13. febrúar. á hátíðarsal MH, Miklagarði. Það mun vera hljómsveit sem spilar undir en það er auðvitað líka leyfilegt að vera með sína eigin. UMSÓKNARFRESTUR BYRJAR í DAG FÖSTUDAGINN 16. JANÚAR OG LÝKUR MIÐVIKUDAGINN 28. JANÚAR. FLÝTIÐ YKKKUR AÐ SÆKJA UM ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER MJÖG HÆPIÐ AÐ UMSÓKNARFRESTURINN VERÐI LENGDUR. Í umsókninni þarf að koma fram: - Full nöfn þáttakenda - Nafn á lagi (má vera bæði cover og frumsamið) - ...

Meira


Hannes Daði Haraldsson — 13.01'09

Handknattleiksmót framhaldsskólanna

Næstkomandi sunnudag, þann 18. janúar, verður haldið fyrsta handboltamót framhaldskólanna. Þar munu tólf framhaldsskólar etja kappi og að sjálfsögðu mun MH vera meðal þeirra. Keppt verður um gríðarlega flottan og fallegan bikar sem sjálfur silfurdrengurinn Sigfús Sigurðsson mun afhenda. Af þessum völdum verður valið fjórtán manna lið sem kemur til með að taka þátt fyrir hönd MH í þessari keppni. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt sendu póst á netfangið handbolti@nfmh.is og þá verður talað við þig. ...

Meira