Magnús Andersen — 05.03'10

Skólafundur

Já já elskurnar mínar þið lásuð rétt það er skólafundur sextánda mars á Miklagarði, klukkan 11:10 eða í tímanum fyrir hádegishlé fyrir ykkur sem kunnið ekki á klukku.

Skólafundur gengur þannig fyrir sig að allir nemendur fá frí í tíma (svekkjandi að vera í gati) til þess að mæta á Miklagarð og taka þátt í skólafundi NFMH, á fundinum verða ræddar lagabreytingatillögur og svo kosið um þær, svo eftir það þá sér forseti vor (Lárus sæti) um að veita þeim sem hafa verið duglegir gott í pokann og þeim sem hafa verið vondir skömm í hattinn. En bíðið nú hæg (obb obb obb), þetta er ekki allt, heldur þarf stjórn NFMH að fá sendar tillögur um efni á þessum fundi s.br. lagabreytngatillögur og tillögur um gott í pokann og skammir í hattinn, þannig að endilega ef að þú villt sjá einhverju breytt í lögum eða einfaldlega skamma einhvern sendu þá tillögur á "lagabreytingar@nfmh.is" fyrir 14 Mars.

Stykkorð

-skólafundur

-4 Mars

-11:10

-Mikligarður

-"lagabreytingar@nfmh.is"

 

Stjórn

Tilbaka á atburðasíðu

Innskráning

Glatað lykilorð